Tugir myrtir í fjórum árásum Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 23. júlí 2018 06:00 Afganskir hermenn hjálpa særðum félaga við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl eftir að sjálfsmorðsárás var gerð. Vísir/AFP
Gærdagurinn markaðist af mannskæðum árásum. Fregnir bárust af hryðjuverkaárásum í Afganistan, Tsjad og Pakistan í gær. Frambjóðandi myrtur í Pakistan og ellefu leigubílsstjórar myrtir í Suður-Afríku eftir harðar deilur. Sjálfsmorðsárás á alþjóðaflugvöllinn í Kabúl kostaði ellefu Afgana lífið Sjálfsmorðsárásarmaður myrti að minnsta kosti ellefu og særði fjórtán við inngang alþjóðaflugvallarins í Kabúl á sunnudag. Najib Danish, upplýsingafulltrúi innanríkisráðuneytisins, sagði að árasarmaðurinn hafi verið fótgangandi og að eitt barn hið minnsta væri á meðal hinna látnu. Mikill fjöldi hafði safnast saman á flugvellinum til þess að bjóða varaforsetann og fyrrverandi stríðsherrann Abdul Rashid Dostum velkominn heim úr útlegð. Fulltrúar ríkisstjórnarinnar, stærstu stjórnmálaflokka og stuðningsmenn Dostum voru á leið út af flugvellinum eftir móttökuathöfnina þegar árásin var gerð. Dostum særðist ekki í árásinni. Hann tilheyrir þjóðflokki Úsbeka og fór í sjálfskipaða útlegð fyrir að hafa lagt á ráðin um nauðgun og pyntingar andstæðings síns í stjórnmálum árið 2017 en hin umrædda árás á að hafa verið gerð 2016. Hann hefur verið varaforseti frá árinu 2014 og missti stöðu sína ekki þegar hann fór í útlegð. AFP greinir frá því að Ashraf Ghani forseti, sem tilheyrir þjóðflokki Pashtuna, hafi samþykkt heimkomu Dostums til þess að koma á stöðugleika í norðurhluta landsins, en þar hefur útlegð hans verið mótmælt af krafti. Þá er ákvörðunin sögð til þess gerð að tryggja stuðning Úsbeka fyrir forsetakosningar næsta árs. Dostum hefur alla tíð neitað fyrrnefndum ásökunum og sagðist hafa farið úr landi til að gangast undir læknisskoðun og vegna fjölskyldu sinnar. New York Times greindi frá málinu sem varð til þess að hann var sendur í útlegð árið 2016. Á hann að hafa rotað Ahmad Ischi, formann Junbish-flokksins, og numið á brott þegar þeir voru saman á íþróttaleik. Menn Dostum eru sakaðir um að hafa haldið Ischi gegn vilja sínum í fimm daga, nauðgað honum og gengið ítrekað í skrokk á honum.Lögregla í Nígeríu handtók átta meinta Boko Haram-liða fyrir helgi sem grunaðir eru um að hafa tekið þátt í ráni á 200 skólastúlkum í bænum Chibok. Samtökin hafa kostað að minnsta kosti 20.000 lífið undanfarin ár.Vísir/afpSkáru átján og háls og námu tíu á brott Talið er að vígamenn Boko Haram hafi staðið að hryðjuverkaárás á smábæinn Kaiga-Kindjiria í Tsjad, stuttu frá landamærunum við Níger og rétt norðvestan af Tsjad-vatni. Herinn þar í landi greindi fyrst frá árásinni í gær, en sagði hana hafa verið gerða á fimmtudagskvöld. „Árásarmennirnir skáru átján á háls, særðu tvo til viðbótar og námu tíu konur á brott,“ var haft eftir heimildarmanni í umfjöllun AFP. Hryðjuverkasamtökin hafa skilið eftir sig sviðna jörð í Nígeríu og nærliggjandi ríkjum allt frá því þau gripu til vopna árið 2009. Að minnsta kosti 20.000 hafa farist í árásum þeirra og tvær milljónir eru á vergangi í heimalandinu. Nígeríski herinn hefur fengið liðsstyrk frá Tsjad, Kamerún og Níger í baráttunni gegn Boko Haram og hafa samtökin að undanförnu gert æ fleiri árásir í Tsjad. Í maí voru til að mynda sex myrtir, þar af fjórir erindrekar ríkisstjórnarinnar, á eyju á Tsjad-vatni. Nígerski herinn greindi svo frá því í gær að tíu hryðjuverkamenn hefðu verið drepnir eftir að Boko Haram réðist á herstöð í suðvesturhluta landsins. „Aðfaranótt föstudags réðust hryðjuverkasamtökin Boko Haram á herstöðina í Baroua,“ sagði í tilkynningu frá varnarmálaráðuneytinu. Einn nígerskur hermaður fórst og tveir særðust.Hermaður og björgunarliði virða fyrir sér bifreið Gandapur, sem ráðist var á í gær. Gandapur lést og hinir fjórir í bílnum særðustVísir/GettyEnn ein árásin á frambjóðendur í Pakistan kostaði frambjóðanda réttlætishreyfingarinnar líf sitt I kramullah Gandapur, frambjóðandi Pakistönsku réttlætishreyfingarinnar (PTI), fórst og fjórir særðust þegar sjálfsmorðsárás var gerð á bifreið hans í Khyber Pakhtunkhwa-fylki í gær. Gandapur hafði verið í framboði fyrir PTI til borgarráðs í Dera Ismail Khan og var á leið af fundi þegar árásin var gerð. Undanfarið hafði Gandapur fengið reglulegar líflátshótanir og höfðu ellefu lögreglumenn gætt hans. PTI er flokkur Imrans Khan, sem áður var fyrirliði landsliðs Pakistans í krikket, og mælist flokkurinn með álíka mikið fylgi og ríkisstjórnarflokkurinn Múslimabandalag Pakistans (PML-N) í aðdraganda þingkosninganna sem fram fara á miðvikudaginn. Tíðar árásir hafa verið gerðar undanfarnar vikur á frambjóðendur og kosningafundi og er Gandapur ekki fyrsti frambjóðandinn sem er myrtur. Sjötíu fórust í árás á kosningafund Lýðflokks Balúkistan fyrr í mánuðinum. Á meðal þeirra var Siraj Raisani, frambjóðandi flokksins. Þá var Haroon Bilour, frambjóðandi ANP, myrtur skömmu fyrr. Á annað hundrað voru svo myrt í einni stærstu árás pakistanskrar sögu um miðjan mánuð. Hryðjuverkamenn tengdir alKaída, Íslamska ríkinu og Talíbönum hafa gert vart við sig í kosningabaráttunni og vekja árásirnar óhug. Enn situr fast í minni Pakistana að 158 fórust í árásum í aðdraganda síðustu kosninga, árið 2013. Ellefu leigubílstjórar myrtir Ellefu leigubílstjórar frá Gauteng-fylki voru á leið sinni heim til Jóhannesarborgar í fyrrinótt þegar skotið var á smárútuna sem þeir ferðuðust á og þeir myrtir. Þeir voru á leið heim úr jarðarför kollega síns í Kwa-Zulu Natal. Fjórir aðrir leigubílstjórar særðust í árásinni. Óljóst er hver ber ábyrgð á árásinni en BBC greinir frá því að erjur leigubílstjóra í Suður-Afríku hafi áður leitt til ofbeldis. Smárúturnar sem leigubílstjórarnir keyra eru vinsælasti ferðamáti Suður-Afríku. „Setið var fyrir bifreiðinni. Ellefu fórust og fjórir særðust alvarlega. Það hefur verið mikið um ofbeldi á milli leigubílstjóra á þessu svæði en við erum enn að reyna að komast að því hverjir báru ábyrgð á árásinni,“ sagði Jay Naicker, upplýsingafulltrúi lögreglu, við fjölmiðla. Sagði hann árásina jafnframt hafa verið gerða á milli bæjanna Colenso og Weenen. Vika er síðan leigubílstjóri var myrtur í bíl sínum í ríkinu og voru tveir aðrir á sama tíma myrtir á meðan þeir nutu lögreglufylgdar. Í maí voru svo tíu myrtir vegna erja leigubílstjóra í Höfðaborg
Birtist í Fréttablaðinu Kamerún Mið-Austurlönd Níger Nígería Pakistan Suður-Afríka Tjad Mest lesið Læknir ekki séð aðra eins áverka á þrjátíu ára starfsferli Innlent Átta ungmenni handtekin í Seljahverfi Innlent „Sleppið föngunum núna eða ykkar mun bíða helvíti“ Erlent Ömmur og afar Bryndísar Klöru: „Tími aðgerða þegar liðinn“ Innlent Íslendingar eigi eitt tromp gegn Trump Innlent Segir Kínverja munu „berjast til hins síðasta“ í stríði við Bandaríkin Erlent Sendiherra látinn fjúka vegna brandara á kostnað Trump Erlent Anna Kristín Arngrímsdóttir er látin Innlent Langflest börn brjóti ekki aftur á öðrum börnum eftir meðferð Innlent Þurfti þrjár tilraunir til að lenda í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Sendiherra látinn fjúka vegna brandara á kostnað Trump Segir Kínverja munu „berjast til hins síðasta“ í stríði við Bandaríkin „Sleppið föngunum núna eða ykkar mun bíða helvíti“ Íhugar að bjóða fram fælingarmátt kjarnorkuvopnabúrsins Arabaríkin samþykkja áætlun um 53 milljarða dala uppbyggingu Gasa Bandaríkin muni eignast Grænland með einum eða öðrum hætti 170 mæður á Bretlandi drepnar af sonum sínum á fimmtán árum Hótanir í tollamálum en sáttartónn í garð Úkraínu Gaseitrun talin ólíkleg þrátt fyrir gasleka Fer í hart við konuna sem sakaði hann um nauðgun Þykir leiðinlegt hvernig fundurinn fór Ákvörðuninni líkt við eftirgjöf bandamanna gagnvart Hitler Arababandalagið fundar um framtíð Gasa í dag Tollaákvarðanir Trump tóku gildi á miðnætti og Kína svarar fyrir sig Bandaríkjamenn setja vopnasendingar á bið Páfinn glímir við mikil öndunarvandræði en þó með meðvitund Tveir látnir í Mannheim Einn látinn í Mannheim eftir að bíl var ekið á fólk „Maðurinn með gullarminn“ látinn Cuomo býður sig fram til borgarstjóra New York Erfitt að sjá aðila ná saman um annan fasa vopnahlésins Hegseth fyrirskipar hlé á netaðgerðum gegn Rússum Starmer segir tíma aðgerða til kominn Hundruð Bandaríkjamanna mótmæltu í nafni Úkraínu Stöðva allan vöruinnflutning inn á Gasa Skrifuðu undir 400 milljarða króna lán til vopnaframleiðslu Kastaðist í kekki milli sendiherrans og öldungadeildarþingmanns Vonast til að geta átt gott samband við Trump Fyrsti fasi vopnahlésins á enda og framtíðin óljós Létust líklega tíu dögum fyrir fundinn Sjá meira