Spænska liðið stendur á bak við de Gea þrátt fyrir gagnrýni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 30. júní 2018 10:30 De Gea hefur fengið á sig fimm mörk í keppninni til þessa vísir/getty
David de Gea er af mörgum talinn einn besti markvörður heims. Hann hefur hins vegar ekki verið að gera gott mót á HM í Rússlandi til þessa og hafa margir stuðningsmenn Spánverja kallað eftir því að hann verði settur á bekkinn. Það ákall fær þó ekki hljómgrunn innan spænska landsliðshópsins og hafa liðsfélagar de Gea fulla trú á honum. „Þetta er óheppileg staða en ef þú hefur séð leiki David fyrir Manchester United eða aðra leiki hans með spænska liðinu þá sérðu að hann er framúrskarandi markvörður,“ sagði miðjumaðurinn Thiago Alcantara. De Gea gerði stór mistök í fyrsta leik Spánverja gegn nágrönnunum í Portúgal þar sem hann missti langskot Cristiano Ronaldo úr höndunum og boltinn rann í marknetið. Fleiri stór mistök hefur hann ekki gert enn, en hann varði ekki skot í fyrstu tveimur leikjum Spánverja í riðlakeppninni. „Fjölmiðlar þurfa að horfa aðeins inn á við og átta sig á hversu frábær leikmaður hann er. Sjáið hversu oft hann hefur verið nefndur besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar. Hann vinnur eins og dýr og við berum fullt traust til hans.“ Spánn mætir heimamönnum í Rússlandi í 16-liða úrslitunum á morgun og eru allar líkur á því að David de Gea verði enn á milli stanganna í spænska liðinu.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Körfubolti „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti Fleiri fréttir Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Arsenal í erfiðri stöðu eftir haítískt sigurmark Mögnuð endurkoma mikilvæg í toppbaráttunni Ísak bombaði inn úr þröngu færi Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf ný hné til þess að geta gengið eðlilega Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Sjá meira