Hyggjast refsa sextán fyrir Róhingjamorð Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 12. febrúar 2018 06:00 Róhingjar á flótta. VÍSIR/EPA
Yfirvöld í Mjanmar ætla að refsa sjö hermönnum, þremur lögreglumönnun og sex almennum borgurum sem voru viðriðnir dráp á Róhingjum í Rakhine-héraði. Frá þessu greindi Zaw Htay, talsmaður ríkisstjórnarinnar, í gær en sagði ákvörðunina ótengda umfjöllun Reuters um málið.Reuters greindi fyrir helgi frá því þegar tíu Róhingjar voru teknir af lífi án dóms og laga í smábænum Inn Din. Sagði Htay þá við miðilinn að gripið yrði til aðgerða ef umfjöllunin reyndist á rökum reist. „Þetta er ekki út af frétt Reuters. Rannsóknin var vel á veg komin áður en fréttin birtist,“ sagði Htay í gær. Hann greindi þó ekki frá því hvað fælist í refsingunni. Í frétt Reuters í gær kom fram að þann 10. janúar hafi herinn sagt Róhingjana tíu hafa tilheyrt 200 manna hryðjuverkasellu sem ráðist hefði á hermenn. Hins vegar stangist sú frásögn á við vitnisburð almennra borgara í Rakhine sem voru vitni að morðunum. Nærri 700.000 Róhingjar hafa flúið Rakhine-hérað frá því í ágúst og farið til Bangladess. Samkomulag hefur náðst um að senda flóttamennina til baka á árinu. Aðgerðir hersins í Rakhine hafa ýmist verið kallaðar þjóðernishreinsanir eða þjóðarmorð.
Bangladess Mjanmar Róhingjar Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Sjá meira