Lífið

Uppblásnum hindrunum dreift um Laugardalinn

Tinni Sveinsson skrifar
Verið er að ákveða hlaupaleiðina þessa dagana. Byrjun og endastöð brautarinnar verða á svæðinu fyrir neðan Áskirkju og svo verður hlaupið víða um Laugardalinn. Þrautir verða á Valbjarnarvelli og víðar.
Verið er að ákveða hlaupaleiðina þessa dagana. Byrjun og endastöð brautarinnar verða á svæðinu fyrir neðan Áskirkju og svo verður hlaupið víða um Laugardalinn. Þrautir verða á Valbjarnarvelli og víðar. Google Maps
Undirbúningur stendur nú yfir fyrir Gung-Ho hindrunarhlaupið, sem fer fram í Laugardalnum 12. ágúst. Hlaupið er fimm kílómetra langt og er tíu risahindrunum komið fyrir á leiðinni sem þátttakendur klöngrast yfir og hafa gaman af.

Hindranirnar sem eru á leið til landsins eru engin smásmíði en hlaupið á uppruna sinn að rekja til Bretlands. Heildar fermetrafjöldinn telur um tvö þúsund fermetra, sem jafngildir því að um 300 bílum væri lagt hlið við hlið, að sögn aðstandenda.

„Við þurfum gríðarlega stórt svæði undir hindranirnar sjálfar auk þess sem að þátttakendur fara fimm kílómetra leið í kringum þrautirnar. Það voru því ekki margir staðir sem komu til greina og við erum gríðarlega ánægð hversu vel Laugardalur hentar fyrir viðburðinn,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri Gung-Ho hlaupsins á Íslandi.

Í tilkynningu kemur fram að vel á þriðja þúsund manns hefur skráð sig til þátttöku. Fyrirkomulagið er þannig að um 250 manns eru ræstir af stað á 15 mínútna fresti. Er orðið uppselt í nokkur ráshólf.

„Þátttakendur velja sér ráshólf við hæfi og það er jafnt álag í gegnum alla brautina hjá okkur.“

Nánari upplýsingar um hlaupið er að finna á Facebook-síðu þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.