Lífið

Lyftu barninu upp eins og hann væri Simbi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Katrín Edda og Markus gáfu syni sínum nafn.
Katrín Edda og Markus gáfu syni sínum nafn. Instagram

Sonur Katrínar Eddu Þorsteinsdóttur, áhrifavalds og verkfræðings, og eiginmanns hennar Markusar Wasserbaech er kominn með nafn. Drengnum var gefið nafnið Aron Atli. 

Hjónin endurgerðu goðsagnarkennt atriði úr Disney-myndinni Konungur ljónanna frá árinu 1994 þegar þau tilkynntu nafnið á samfélagsmiðlum í gær.

„Ekki dæma foreldra mína fyrir að vera óendanlega sniðugir og fyndnir,“ skrifaði Katrín við myndbandið. Þar má sjá hjónin klædd í gervi Múfasa og apans Rafíki þegar þau lyfta barninu líkt og þegar þau væru ofan Ljósuklettum. 

Aron Atli er annað barn hjónanna og kom hann í heiminn 14. nóvember síðastliðinn. Fyrir eiga þau eina dóttur, Elísu Eyþóru sem verður tveggja ára þann 17. des­em­ber.


Tengdar fréttir

Fagna tveimur brúðkaupsafmælum á einu ári

Katrín Edda Þorsteinsdóttir, áhrifavaldur og verkfræðingur, og eiginmaður hennar Markus Wasserbaech fögnuðu því í gær að eitt ár er liðið frá því að þau gengu í hjónaband við fallega athöfn á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.