Fyrsta tapið síðan um miðjan apríl var skellur á heimavelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. maí 2017 19:00 Elías Már Ómarsson. Vísir/Getty
Elías Már Ómarsson fagnaði sigri í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. IFK Gautaborg vann þá 4-0 útisigur á GIF Sundsvall. Kristinn Steindórsson var í byrjunarliði Sundsvall og Kristinn Freyr Sigurðsson kom inná sem varamaður í seinni hálfleik. Kristinn Freyr komst bara á blað þegar hann gekk tvisvar sinnum í rangstöðugildru Gautaborgarliðsins þær 26 mínútur sem hann spilaði. Elías Már Ómarsson kom inná sem varmaður hjá IFK Gautaborg á 80. mínútu en þá var staðan orðin 3-0. Elías Már kom inn fyrir Tobias Hysén sem hafði skorað tvö mörk í leiknum. Gautaborg náði að bæta við einu marki eftir að Elías Már kom inná völlinn en það skoraði Mads Albæk. Fyrri þrjú mörkin komu á 32., 34. og 45. mínútu leiksins og staðan var því orðin 3-0 í hálfleik. Emil Salomonsson skoraði mark númer tvö úr vítaspyrnu. IFK Gautaborg var ekki búið að fá nema eitt stig út úr síðustu þremur útileikjum sínum en þrefaldaði þann stigafjölda í kvöld. Þetta var fyrsta tap Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni síðan um miðjan apríl en liðið var búið að leika sex leiki í röð án þess að tapa og var tveimur sætum fyrir ofan Gautaborgarliðið í töflunni.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Fótbolti Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Fleiri fréttir Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Sjá meira