Dramatískar lokamínútur hjá Íslendingaliðunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. apríl 2017 18:01 Aron í vináttulandsleiknum gegn Írlandi í síðustu viku. vísir/getty
Enginn Íslendingur var í sigurliði í þeim leikjum sem er lokið í 1. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag. Aron Sigurðarson var í byrjunarliði Tromsö sem gerði 1-1 jafntefli við Brann á heimavelli. Jakob Orlov kom Brann yfir í upphafi seinni hálfleiks en Simen Wangberg jafnaði metin á lokamínútunni og tryggði Tromsö stig. Viðar Ari Jónsson var ekki í leikmannahópi Brann en hann fékk lengra frí eftir landsleikina í síðustu viku. Aron Elís Þrándarson, Adam Örn Arnarson og Daníel Leó Grétarsson voru allir í byrjunarliði Aalesund sem tapaði 3-1 fyrir Stabæk á útivelli. Ohi Anthony Omoijuanfo skoraði öll þrjú mörk Stabæk í leiknum. Aron Elís og Adam spiluðu allan leikinn en Daníel Leó var tekinn af velli í hálfleik. Ingvar Jónsson stóð á milli stanganna hjá Sandefjord sem tapaði á grátlegan hátt fyrir Lilleström á útivelli, 2-1. Flamur Kastrati kom nýliðum Sandefjord yfir á 22. mínútu og þannig var staðan fram á 87. mínútu þegar Michal Skoda jafnaði metin. Joachim Solberg Olsen skoraði svo sjálfsmark þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma og Lilleström fékk því öll stigin þrjú.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Körfubolti „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti Fleiri fréttir Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Arsenal í erfiðri stöðu eftir haítískt sigurmark Mögnuð endurkoma mikilvæg í toppbaráttunni Ísak bombaði inn úr þröngu færi Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf ný hné til þess að geta gengið eðlilega Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Sjá meira