Viðskipti innlent

Brúnegg gjaldþrota: „Nú er mál að linni“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þessar pakkningar sjást ekki lengur í hillum stærstu verslana landsins.
Þessar pakkningar sjást ekki lengur í hillum stærstu verslana landsins. Vísir/Daníel

Eigendur Brúneggja ehf. hafa óskað eftir því að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Þeir segja tilraunir til að rétta hlut fyrirtækisins eftir umfjöllun Kastljóss um slæman aðbúnað hænsna hjá fyrirtækinu hafi ekki borið árangur.

Í tilkynningu frá eigendum Brúneggja segir að nær öll eggjasala fyrirtækisins hafi stöðvast strax eftir umfjöllun Kastljóss. Segja þeir að fljótlega hafi það blasað við „lífróður eigendanna myndi ekki duga til að halda fyrirtækinu gangandi nema í takmarkaðan tíma,“ líkt og segir í tilkynningunni.

Þar segir jafnframt að enginn atvinnurekstur þoli það að „missa nær allar tekjur sínar svo að segja á einni nóttu en sitja eftir með tilheyrandi kostnað og útgjöld.“

Stærstu matvælaverslanir landsins lokuðu á fyrirtækið í nóvember.Vísir/Anton

Öllu starfsfólki fyrirtækisins var sagt upp og ákveðið var að leggja niður starfsemi Brúneggja á Teigi og í Silfurhöll í Mosfellsbæ síðastliðinn janúar. Í tilkynningunni segir að aðstæður í gömlu fuglahúsunum þar hafi gert mönnum erfitt fyrir að uppfylla viðmið um loftgæði sem kveðið er á um í reglugerðum.

Mál Brúneggja olli töluverðri hneykslan en í umfjöllun Kastljóss kom fram að Matvælastofnun hafi gert athugasemdir við það hvernig farið var með hænur fyrirtækisins í júlí 2015 og krafist umbóta en í ljós kom að Brúnegg ehf. hafði ítrekað brotið lög um velferð dýra sem og reglugerðir um velferð alifugla.

Í Kastljósi voru sýndar myndir og myndbönd sem sýndu skelfilegan aðbúnað dýranna, en þar kom fram að starfsmenn hefðu sett músaeitur á gólf í forrými þar sem egg væru geymd og að þar hefði einnig fundist dauð mús og lirfur á gólfi.

„Eigendur Brúneggja harma þá vankanta í starfseminni sem fundið hefur verið að á liðnum misserum en harma ekki síður að þessi verði endalok fyrirtækisins. Nú er mál að linni“ segir í tilkynningu frá eigendum Brúneggja.

Tilkynning eigenda Brúneggja í heild sinni

„Eigendur Brúneggja ehf. óskuðu eftir því í dag að félagið yrði tekið til gjaldþrota-meðferðar.

Nær öll eggjasala stöðvaðist strax eftir að Kastljós RÚV fjallaði um starfsemina 28. nóvember sl. Tilraunir til að rétta hlut fyrirtækisins í óvæginni umfjöllun dagana á eftir báru ekki árangur og við blasti fljótlega að lífróður eigendanna myndi ekki duga til að halda fyrirtækinu gangandi nema í takmarkaðan tíma.

Enginn atvinnurekstur þolir það að missa nær allar tekjur sínar svo að segja á einni nóttu en sitja eftir með tilheyrandi kostnað og útgjöld.

Öllu starfsfólki fyrirtækisins var sagt upp og þrátt fyrir að starfsstöðvar þess væru allar með fullt starfsleyfi frá Matvælastofnun var ákveðið að leggja niður starfsemi á Teigi og í Silfurhöll í Mosfellsbæ í janúar sl. Aðstæður í gömlu fuglahúsunum þar gerðu mönnum erfitt fyrir með að uppfylla viðmið um loftgæði sem kveðið er á um í reglugerð um dýravelferð frá 2015.

Eigendur Brúneggja harma þá vankanta í starfseminni sem fundið hefur verið að á liðnum misserum en harma ekki síður að þessi verði endalok fyrirtækisins.

Nú er mál að linni.

Eigendur Brúneggja ehf.“


Tengdar fréttir

Vilja selja Brúnegg fyrir lok febrúar

Eigendur Brúneggja eiga í viðræðum við "þrjá aðskilda hópa fjárfesta“ um að þeir kaupi fyrirtækið og stefnt er að því að niðurstaða fáist í þær fyrir lok mánaðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×