Kári Árnason sænskur meistari með Malmö Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. október 2016 18:57 Kári Árnason verður í Meistaradeildinni með Malmö á næstu leiktíð. vísir/getty
Kári Árnason og félagar hans í Malmö urðu í kvöld sænskir meistarar í fótbolta. Malmö vann öruggan 3-0 sigur á Falkenberg á útivelli á sama tíma og Jóni Guðni Fjóluson og félagar hans í IFK Norrköping töpuðu fyrir Elfsborg, 2-1, á útivelli. Jón Guðni fékk beint rautt spjald í tapinu á 90. mínútu en liðið hleypti lífi í titilbaráttuna í síðustu umferð þegar það vann en Malmö tapaði. Malmö er nú með sjö stiga forskot á toppnum þegar aðeins sex stig eru eftir í pottinum í þeim tveimur umferðum sem eru eftir og er því orðið meistari í 22. sinn í sögunni. Þetta er fjórði Svíþjóðarmeistaratitill Malmö frá árinu 2010 en það er búið að festa sér sess sem stærsta liðið í Svíþjóð. Það missti af titlinum í fyrra til Norrköping sem þarf nú að láta hann af hendi. Kári Árnason kom til Malmö í fyrra og spilaði alla leiktíðina í hjarta varnarinnar hjá meistaraliðinu. Viðar Örn Kjartansson spilaði hálfa leiktíðina áður en hann var seldur til Ísrael. Viðar er engu að síður enn þá markahæstur í sænsku úrvalsdeildinni með fjórtán mörk. Þetta er í annað sinn sem Kári verður meistari í Svíþjóð en hann fagnaði sigri í sænsku úrvalsdeildinni fyrir ellefu árum síðan þegar hann var leikmaður Djurgården. Hann varð tvöfaldur meistari 2005 en Malmö komst í úrslitaleik bikarsins í byrjun tímabilsins en tapaði.pic.twitter.com/r60hWXrNSQ— Malmö FF (@Malmo_FF) October 26, 2016
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira