Fótbolti

Cristiano Ronaldo vildi sér búningsklefa á Laugardalsvellinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo gengur hér til leiks í Laugardalnum.
Cristiano Ronaldo gengur hér til leiks í Laugardalnum. Vísir/Anton
Knattspyrnugoðið Cristiano Ronaldo mætir Íslandi í fyrsta sinn í tæp fimm ár þegar Portúgal og Ísland spila fyrsta leik sinn á Evrópumótinu í Frakklandi á þriðjudaginn kemur.

Guardian er einn af mörgum fjölmiðlum sem hafa fjallað um Evrópuævintýri litla Íslands í aðdraganda EM í Frakklandi og í grein sinni um Ísland rifjaði blaðamaðurinn upp þegar Cristiano Ronaldo mætti á Laugardalsvöllinn í október 2010.

Ísland dróst á móti Portúgal í undankeppni EM 2012 og þegar Cristiano Ronaldo mætti til Íslands þá vildi hann fá sér búningsklefa á Laugardalsvellinum.

Ef að Knattspyrnusamband Íslands hefði orðið við hans ósk hefði liðsfélagar hans í portúgalska landsliðinu þurft að klæða sig út á gangi. Ósk hans var því hafnað kurteisilega eins og segir í greininni.

Cristiano Ronaldo lét þetta þó ekki trufla sig og var búinn að koma Portúgal í 1-0 eftir aðeins þrjár mínútur með skoti beint úr aukaspyrnu af 30 metra færi. Ronaldo átti einnig þátt í þriðja markinu í 3-1 sigri.

Blaðmaður Guardian segir að Ronaldo hafi ekki áttað sig á því að hann væri í jafnréttis þjóðfélagi þar sem heiðurs- og virðingartitlar eru litnir hornauga. Á Íslandi eru nefnilega allir kallaðir með sínu eiginnafni.

Hann líkir einnig Laugardalsvellinum við gömlu leikvangana í Sovétríkjunum sálugu og er ekki oft glöggt gests augað. „Reyndar er þjóðarleikvangurinn eins og margt annað á Íslandi eða eins og hann hafi verið skilinn þarna eftir af risum sem áttu leið hjá," skrifar Barney Ronay.

Blaðamaður Guardian fer annars ítarlega yfir íslenska ævintýrið í stórri og glæsilegri grein sinni sem má nálgast hér en fyrir neðan má sjá einnig myndband um Ísland sem var unnið af Guardian og birtist á fésbókarsíðu blaðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×