Innlent

Óbærilegur hávaði sem fáir fundu fyrir

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Meirihluti viðmælenda kannaðist ekki við óbærilegan hávaða frá Secret Solstice sem minnihlutinn kvartaði yfir.
Meirihluti viðmælenda kannaðist ekki við óbærilegan hávaða frá Secret Solstice sem minnihlutinn kvartaði yfir. Fréttablaðið/Andri Marínó
Skiptar skoðanir eru meðal nágranna tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice sem haldin var í Laugardalnum síðustu helgi. Meirihluti nágranna sem blaðamaður náði tali af voru þó jákvæðir í garð hátíðarinnar.

Um fjórðungur þeirra var ósáttur við hátíðina og nefndi hávaða sem helstu orsökina. Þá nefndi einn nágranni áhyggjur sínar af dýrunum í Húsdýragarðinum. Sá taldi hávaðann sem barst frá hátíðinni ógna heilsu dýranna.

„Mér fannst þetta bara alveg hræðilegt í einu orði sagt. Frá hádegi á föstudegi til miðnættis á sunnudegi glumdi allt húsið,“ segir Margrét K. Sigurðardóttir, nágranni, sem var mjög óánægð með hátíðina. „Það er gengið á okkar persónulega rétt í hverfinu. Þetta á ekki heima hér,“ bætir hún við.

Margrét K. Sigurðardóttir
Margrét var að sama skapi óánægð með niðurstöðu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur en það komst að þeirri niðurstöðu að hljóðstyrkur á hátíðinni hafi ekki farið yfir sett mörk. Margrét segir það fráleitt.

Heimili í grennd við hátíðarsvæðið fengu miða á hátíðina með afslætti. Tveir viðmælendur sögðust óánægðir með að fá einungis einn miða með afslætti og sögðu það lélegar skaðabætur.

Meirihluti nágrannanna kvartaði ekki yfir hávaða. Nágrannarnir sögðust ánægðir með hátíðina. Flestir sögðust ekki hafa fundið fyrir neinum hávaða og margir sögðust ánægðir með að fá líf í dalinn.

„Maður nýtur þessa dals alla daga og mér finnst allt í lagi að fleiri fái að gera það,“ segir Inga Kjartansdóttir, nágranni.

Víðir Helgi Helgason
Aðrir sögðu hávaðann ekki svo mikinn að hann væri óbærilegur en sögðust samt hafa heyrt tónlistina að einhverju leyti heim til sín.

„Það var fínt að geta verið heima og heyrt í tónlistinni. Ég hafði mjög gaman af þessu,“ segir Víðir Helgi Helgason, sem hafði þar að auki keypt sér miða á hátíðina en komst ekki vegna hálskirtlatöku.

„Ég var virkilega ánægð með framkvæmd hátíðarinnar. Mér fannst tímamörkin alltaf standast,“ segir Rósa Björk Sveinsdóttir, nágranni. Dagskrá á stóra sviðinu lauk fyrir miðnætti alla daga.

Margir nágrannanna sögðust ánægðir með að hátíðin hefði minnkað hávaðann frá því í fyrra og nefndu til dæmis að ekki hefði verið staðið í hljóðprufum snemma morguns líkt og í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×