Innlent

Sé lík­lega met að vera hafnað af flokki sínum tvisvar í sama mánuði

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Jódís Skúladóttir hefur setið á þingi fyrir Vinstri græn síðan 2021.
Jódís Skúladóttir hefur setið á þingi fyrir Vinstri græn síðan 2021. Vísir/Vilhelm

Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi, segir að henni hafi ekki boðist oddvitasæti og því segi hún skilið við pólitíkina. Hún segir það líklega met að hafa verið hafnað tvisvar af eigin flokki í sama mánuði.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem Jódís birti í kvöld.

„Í dag varð ljóst að ég mun ekki verða oddviti í mínu kjördæmi og hef ég afþakkað sæti ofar en það fimmta. Ég var tilbúin að taka þann slag en eftir að ljóst var að sú yrði ekki niðurstaðan met ég það sem svo að fjölskyldan mín eigi meiri fyrirsjáanleika og festu skilið en pólitíkin getur veitt,“ skrifar hún í færslunni og bætir við: „Guð blessi 9-5 og helgarfrí.“

Þá segir hún að það sé líklega einhvers konar met að vera hafnað af sínu eigin stjórnmálaafli tvisvar sinnum í sama mánuði og vísar þar til þess þegar hún tapaði fyrir Guðmundi Inga Guðbrandssyni í varaformannsslag á landsfundi Vinstri grænna fyrir skömmu.

„Eftirspurnin eftir mér virðist talsvert meiri meðal almennings en innan VG,“ skrifar hún.

Skortir auðmýkt á Alþingi

Hún segist þó aldrei hafa talið sig eiga neitt skilið í pólitík og taki þetta ekki mjög nærri sér. Hún styðji VG, sé trú stefnunni og hafi ekki kvikað frá henni eitt andartak. Þess vegna sé það heiður að taka sæti á listanum og styðja félagana í VG til góðra verka.

„Ég hef kynnst ótrúlega mörgum og fengið tækifæri til að sjá inn í margs konar veruleika á þessum þremur árum. Það er mjög margt sem mér finnst um íslenska stjórnskipan og hvernig fólk í valdastöðum umgengst t.d. þingræðið. Það sem skortir mest á Alþingi Íslendinga er auðmýkt.

Ég hætti örugglega aldrei að vera öfga-feministi, náttúruverndarsinni og grjóthörð vinstri kona. Kannski býð ég fram krafta mína seinna þegar börnin eru stærri og aðstæður auðveldari en nú tekur við nýr kafli fullur af tækifærum.

Það er sko hægt að vera róttæk og berjast fyrir réttlátu samfélagi víðar en í „le cirque de l'absurde“ við Austurvöll,“ skrifar hún einnig.

Leiðrétting: Í upphaflegri frétt stóð að Jódís væri sitjandi oddviti en það er ekki rétt, hún er annar þingmaður Vinstri gænna í kjördæminu. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er sitjandi oddviti en tilkynnti fyrr í dag að hún hygðist ekki gefa kost á sér áfram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×