Körfubolti

Tekst Snæfellskonum það sem engu kvennaliði hefur tekist í átta ár?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pálína Gunnlaugsdóttir frá Grindavík, Gunnhildur Gunnarsdóttir frá Snæfelli, Lele Hardy frá Haukum og Lovísa Falsdóttir frá Keflavík.
Pálína Gunnlaugsdóttir frá Grindavík, Gunnhildur Gunnarsdóttir frá Snæfelli, Lele Hardy frá Haukum og Lovísa Falsdóttir frá Keflavík. Vísir/Stefán
Úrslitakeppni kvenna í körfubolta fer af stað í kvöld þegar bæði undanúrslitaeinvígin hefjast. Stelpurnar eru mun seinna á ferðinni en í fyrra sem sést á því að í ár byrja þær 8. apríl en Íslandsbikarinn fór á loft 6. apríl í fyrra. Leikir kvöldsins fara fram í Stykkishólmi og í Keflavík og hefjast klukkan 19.15.

Snæfell er deildarmeistari eins og í fyrra og mætir Grindavík sem tryggði sig inn í úrslitakeppnina í síðustu umferðinni. Keflavík og Haukar mætast síðan annað árið í röð í undanúrslitum Íslandsmótsins. Snæfell hefur unnið alla fjóra deildarleiki sína við Grindavík í vetur með nokkrum yfirburðum (23,3 stigum að meðaltali) en staðan var hins vegar jöfn 2-2 hjá Keflavík og Haukum.

Íslandsmeistarar Snæfells unnu fjóra síðustu leiki sína í úrslitakeppni fyrir ári og reyna að verða fyrsta liðið í átta ár sem nær að verja Íslandsmeistaratitilinn. Snæfellsliðið mætir líka inn í úrslitakeppnina í rétta gírnum eftir að hafa unnið fjóra síðustu leiki sína með 29,5 stigum að meðaltali. Þar á meðal var 28 stiga útisigur á Grindavíkurliðinu.

Grindavíkurkonur eru komnar í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í fimm ár (2010) og þær hafa ekki unnið seríu í tíu ár (2005). Þjálfari liðsins, Sverrir Þór Sverrisson, er hins vegar vanur að fara með sín kvennalið alla leið í lokaúrslitin og nú er að sjá hvort Grindavík komist þangað í fyrsta sinn frá 2005.

Haukaliðið hefur sópað Keflavík tvisvar út úr undanúrslitunum á síðustu þremur tímabilum (3-0 bæði 2012 og 2014) og það má búast við því að Keflavíkurkonur mæti í hefndarhug inn í þetta einvígi. Til þess þurfa Keflavíkurkonur þó að byrja úrslitakeppnina vel en þær hafa tapað fyrsta leik í henni undanfarin þrjú ár.

Þau lið sem fyrr vinna þrjá leiki tryggja sér sæti í lokaúrslitunum. Snæfell og Haukar eiga möguleika á að komast þangað annað árið í röð og Keflavík í sextánda skiptið í sögunni en Grindavíkurkonur hafa beðið í áratug eftir því að spila um Íslandsmeistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×