Birkir í VG: Meiri óreiða á Ítalíu en í Sviss Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. október 2015 15:30 Birkir hefur farið vel af stað með Basel. vísir/epa
Birkir Bjarnason er ánægður með fyrstu mánuðina hjá Basel. Þetta segir landsliðsmaðurinn í samtali við Verdens Gang í Noregi. Basel keypti Birki frá ítalska B-deildarliðinu Pescara í sumar en félagaskiptin komu nokkuð á óvart því allt benti til þess að hann væri á leið til Torino. Birkir segir að valið hafi verið auðvelt þegar Basel kom inn í myndina. „Þetta er frábært félag. Þetta var allt óreiðukenndara á Ítalíu. Samningurinn sem ég skrifaði undir þar var þrjár blaðsíður, en 40 hér. Það er talsverður munur á lífinu í Sviss og á Ítalíu,“ sagði Birkir sem skrifaði undir þriggja ára samning við Basel sem hefur orðið svissneskur meistari undanfarin sex ár. „Mér líður mjög vel hér og vonandi get ég fest mig í sessi hjá Basel,“ sagði Birkir ennfremur. Basel komst ekki í riðlakeppni Meistaradeildarinnar sem Birkir segir að hafi verið vonbrigði. Þess í stað leikur svissneska liðið í Evrópudeildinni. „Það var svekkjandi að komast ekki í riðlakeppnina. En við erum í fyrsta styrkleikaflokki í Evrópudeildinni og erum með frábært lið. Við munum ná langt,“ sagði Birkir en Basel tekur á móti Lech Poznan í I-riðli Evrópudeildarinnar í kvöld. Birkir skoraði í 1-2 sigri Basel á Fiorentina í fyrsta leik liðsins í riðlinum.Leikur Basel og Lech Poznan hefst klukkan 17:00 og verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.
Evrópudeild UEFA Fótbolti Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Fleiri fréttir Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Sjá meira