Fótbolti

Metið hans Birkis lifir enn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birkir Kristinsson fagnar hér 1-1 jafntefli á móti Frökkum á Laugardals-vellinum ásamt þeim Þórði Guðjónssyni og Rúnari Kristinssyni. Birkir hélt marki sínu hreinu í næstu þremur mótsleikjum og 59 mínútum betur.
Birkir Kristinsson fagnar hér 1-1 jafntefli á móti Frökkum á Laugardals-vellinum ásamt þeim Þórði Guðjónssyni og Rúnari Kristinssyni. Birkir hélt marki sínu hreinu í næstu þremur mótsleikjum og 59 mínútum betur. Vísir/Hilmar Þór
Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska knattspyrnulandsliðsins, náði ekki að ógna meti Birkis Kristinssonar þrátt fyrir að hafa haldið íslenska markinu hreinu í þrjá og hálfan leik í undankeppni EM. Met Birkis frá því í undankeppni EM 2000 stendur því áfram óhaggað.

Hannes Þór var fyrir löngu búinn að bæta sitt persónulega met og komast upp fyrir Árna Gaut Arason og upp í annað sætið þegar hann hélt hreinu gegn bronsliði Hollendinga á Laugardalsvellinum.

Hannes hélt hreinu þar til í uppbótartíma fyrri hálfleiks á móti Tékkum en hann var þá búinn að halda markinu hreinu í 315 mínútur og átti enn 68 mínútur eftir í að jafna met Birkis Kristinssonar frá því í undankeppni EM 2000.

Birkir Kristinsson hélt þá íslenska markinu hreinu í þremur leikjum í röð líkt og Hannes en að auki fékk Birkir ekki á sig mark í 54 mínútur fyrir þessa þriggja leikja törn og þá var ekki skorað hjá honum fyrr en eftir 59 mínútur í fjórða leiknum.

Birkir hélt markinu hreinu í leikjum á móti Armeníu (0-0), Rússlandi (1-0) og Andorra (2-0). Frakkinn Christophe Dugarry var síðastur til að skora hjá honum í 1-1 jafntefli á Laugardalsvellinum og Birkir hélt frá því íslenska markinu hreinu í 383 mínútur eða þar til að Úkraínumaðurinn Vladyslav Vashchuk skoraði í 1-1 jafntefli í Kiev.

Hér til hliðar má sjá lista yfir þá markmenn sem hafa haldið íslenska markinu lengst hreinu í einni undankeppni HM eða EM. Hannes er þar líka í sjöunda sæti síðan úr síðustu keppni en Birkir á þrjár af sex lengstu törnum íslenskra markvarða með hreint mark á bak við sig.

Lengst haldið hreinu í einni undankeppni

Birkir Kristinsson, EM 2000 - 383 mínútur

Hannes Þór Halldórsson, EM 2016 - 315 mínútur

Árni Gautur Arason, HM 2002 - 247 mínútur

Kristján Finnbogason, HM 1998 -231 mínúta

Birkir Kristinsson, HM 1994 - 220 mínútur

Birkir Kristinsson, EM 1996 - 217 mínútur

Hannes Þór Halldórsson, HM 2014 - 201 mínúta

Þorsteinn Bjarnason, EM 1984 - 188 mínútur

Bjarni Sigurðsson, EM 1988 - 184 mínútur

Árni Gautur Arason, EM 2004 - 182 mínútur

Birkir Kristinsson, EM 2000 - 180 mínútur

Hannes Þór Halldórsson, HM 2014 - 177 mínútur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×