Fótbolti

Gekk betur hjá stranga skólakennaranum en vinalega frændanum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Birkir Bjarnason reynir að fara framhjá Arjen Robben í leiknum á mánudaginn.
Birkir Bjarnason reynir að fara framhjá Arjen Robben í leiknum á mánudaginn. Vísir/Andri Marinó
Bart Vlietstra skrifaði athyglisverða grein um hollenska landsliðið sem birtist á vefsíðu the Guardian í gær.

Holland tapaði sem frægt er orðið gegn Íslandi á Laugardalsvellinum á mánudagskvöldið, en hollenska liðið hefur tapað þremur af fjórum fyrstu leikjum sínum undir stjórn Guus Hiddink, sem tók landsliðinu af Louis van Gaal eftir HM í sumar. Hiddink gerði samning fram yfir EM 2016, en eftir það tekur Danny Blind, annar af aðstoðarþjálfurum Hollands, við liðinu.

Vlietstra segir að þessi tvö ár undir stjórn Hiddinks hefðu átt að vera viðeigandi lokapunktur á ferli hans, eftir erfið ár að undanförnu.

„Þetta átti að vera fullkomin leið til að enda ferilinn,“ segir Vlietstra í upphafi greinarinnar.

„Síðustu ár hafa verið erfið hjá Hiddink (Rússland komst ekki á HM 2010, Tyrklandi mistókst að tryggja sér sæti á EM 2012 og hlutirnir gengu ekki upp hjá milljarðaliði Anzhi Makhachkala) en þau áttu að falla í gleymskunnar dá, að því gefnu að hann næði góðum árangri með Holland á EM 2016.“

Vlietstra segir að hollenska liðið hafi litið vel út þegar Hiddink tók við því, enda var Holland nýbúið að vinna til bronsverðlauna á HM í Brasilíu, og framtíðin virtist björt.

Ungir leikmenn á borð við Daryl Janmaat (Newcastle), Stefan de Vrij (Lazio), Bruno Martins Indi (Porto) og Daley Blind (Manchester United) voru nýgengnir til liðs við stór lið í sterkum deildum og aðrir ungir leikmenn eins og Jordy Clasie (Feyenoord), Memphis Depay og Georginio Wijnaldum (PSV) voru teknir við leiðtogahlutverkum hjá félagsliðum sínum.

Ísland er sex stigum á undan Hollandi í undankeppni EM 2016.Vísir/Vilhelm
Þá voru eldri leikmenn á borð við Robin van Persie (Manchester United), Nigel de Jong (AC Milan) og Arjen Robben (Bayern München) enn í lykilhlutverkum hjá sínum félagsliðum og góðir leikmenn eins og Rafael van der Vaart, Ibrahim Affelay og Gregory van der Wiel voru að snúa aftur eftir meiðsli.

„Fjölmiðlarnir voru einnig á bandi Hiddink. Á meðan Van Gaal deildi við þá og hunsaði er Hiddink alltaf fullkominn herramaður, sem gefur þeim efni til að vinna með og býður þeim jafnvel upp á hótel að spjalla með stóran vindil í hönd,“ segir Vlietstra í greininni.

Hlutirnir hafa hins vegar ekki gengið jafn vel og ætla mætti. Holland tapaði fyrsta leik sínum undir stjórn Hiddink, æfingaleik gegn Ítalíu, og hollenska liðið tapaði einnig fyrir Tékklandi í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2016. Naumur sigur á Kasakstan vannst svo áður en að tapinu fyrir Íslandi kom.

Hiddink breytti um leikaðferð frá tíma Van Gaal (úr5-3-2 í 4-3-3) og andrúmsloftið breyttist í hollenska hópnum. Wesley Sneijder, leikmaður Galatasary, lýsti Van Gaal sem ströngum kennara, en Hiddink sem vinalegum frænda.

Þessar breytingar hafa ekki virkað, allavega ekki hingað til. Holland hefur ekki náð góðum úrslitum og ágreiningur - sem er ekki óalgengur hjá hollenskum liðum - kom upp á milli framherjanna Van-Persie og Klaas-Jan Huntelaar eftir leikinn gegn Kasakstan.

Vlietstra bendir einnig á að Holland treysti um of á Robben og að Hiddink hafi viðurkennt að líkamlegt ástand hollenskra leikmanna sé ekki nógu gott.

Grein Vlietstra má lesa í heild sinni hér.


Tengdar fréttir

Kolbeinn: Hef fengið nokkur SMS

Segir að hollenska liðið hljóti að bera virðingu fyrir því íslenska fyrir leikinn í kvöld.

Kolbeinn: Gaman fyrir mig að koma á æfingu

"Ég mæti til Hollands með bros á vör. Þetta var frábær sigur,“ sagði Kolbeinn Sigþórsson, framherji íslenska landsliðsins, eftir 2-0 sigurinn á Hollandi í kvöld.

Ísland vann stórbrotinn sigur á Hollandi

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörkin í stórglæsilegum 2-0 sigri á stjörnum prýddu liði Hollands. Ísland er með fullt hús stiga að loknum þremur umferðum.

Bronsliði HM pakkað saman í kuldanum

Ísland vann eitt sitt stærsta afrek frá upphafi er liðið vann stórbrotinn 2-0 sigur á ógnarsterku liði Hollands á Laugardalsvelli í gær.

Hannes: Þetta eru náttúrulega frægir karlar

Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, er ósigraður það sem af er undankeppni EM en hann hefur haldið hreinu í tveimur fyrstu leikjum íslenska liðsins og er fyrsti íslenski markvörðurinn sem nær því.

Hollendingum var svolítið kalt í Dalnum í kvöld - myndir

Hollenska landsliðið æfði á Laugardalsvellinum í kvöld en framundan er leikur á móti sjóðheitu íslensku landsliði á sama stað klukkan 18.45 annað kvöld. Íslenska landsliðið getur náð sex stiga forskoti á Holland með sigri.

Óbreytt byrjunarlið hjá Íslandi

Lars og Heimir stilla upp sama liðinu þriðja leikinn í röð þegar Ísland mætir Hollandi á Laugardalsvelli í kvöld.

De Boer: Hiddink er búinn á því

Ronald de Boer, fyrrverandi leikmaður Ajax, Barcelona og hollenska landsliðsins, er lítt hrifinn af Guus Hiddink, landsliðsþjálfara Hollands.

Van Persie stendur með Hiddink

Þrátt fyrir þrjú töp í fyrstu fjórum leikjunum undir stjórn Guus Hiddink hefur Robin van Persie, landsliðsfyrirliði Hollands, trú á þjálfaranum reynda.

Jón Daði: Varnarleikurinn var stórkostlegur

"Þetta er alveg frábært, frábær dagur fyrir íslensku þjóðina,“ sagði Jón Daði Böðvarsson sem átti magnaðan leik í framlínu Íslands gegn Hollandi á Laugardalsvelli í kvöld.

Pínlegt og til skammar

Hollenskir fjölmiðlar brugðust illa við tapinu á Íslandi í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×