Innlent

Minningarorð Kasparov um Bobby Fischer: „Mesta goðsögn skáksögunnar“

Daníel Rúnarsson skrifar
Garry Kasparov.
Garry Kasparov. Vísir/Daníel

Garry Kasparov kom til Íslands í gær í tilefni af 50. Reykjavíkurskákmóti Skáksambands Íslands. Kasparov nýtti tækifærið og fór að leiði Bobby Fischer ásamt því að skoða Fischersetrið á Selfossi.

Í gær var jafnframt fæðingardagur Bobby Fischer, 9. mars, en hann fæddist árið 1943 og hefði því orðið 71 árs í gær.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, fylgdi Kasparov eftir frá Hörpu og austur að leiði Fischer í Laugardælakirkjugarði.

Kasparov og Silvio Danailov.Vísir/Daníel

Kasparov heimsótti þátttakendur í 50. Reykjavíkurskákmóti Skáksambands Íslands í Hörpu ásamt Silvio Danailov, forseta Skáksambands Evrópu. Nærvera Kasparov hafði mikil áhrif á einbeitingu keppenda og fór kliður um salinn þegar hann gekk þar inn.

Kasparov er af mörgum talinn besti skákmaður sögunnar og var til dæmis á toppi heimslistans í 225 mánuði á 228 mánaða tímabili á árunum 1986 til 2005. Kasparov fæddist í Baku í Azerbaijan árið 1963.

Kasparov við leiði Fischer.Vísir/Daníel

Næst lá leið Kasparov austur að Laugadælakirkju við Selfoss en þar hvílir Bobby Fischer. Kasparov vottaði þar Fischer virðingu sína en leiðið er látlaust og ekki margt sem bendir til að þar hvíli einn mesti skákmaður sögunnar.

Kyrrðarstund í LaugadælakirkjuVísir/Daníel

Inni í Laugadælakirkju var kyrrðarstund undir stjórn Einars S. Einarssonar. Einar var hluti af RJF hópnum (Robert James Fischer) sem vann að því að Bobby Fischer settist að á Íslandi. Kasparov skrifaði minningarorð í sérstaka minningabók sem geymd er í kirkjunni. Kveðja Kasparov var eftirfarandi:

„To the memory of Robert J. Fischer, the greatest legend in the history of the game of chess. I wish we had a chance to meet and work together for the glory of our beloved game. Garry Kasparov.“

Kasparov gengur frá Laugadælakirkju.Vísir/Daníel

Að lokinni kyrrðarstund lá leið Kasparov að Fischersetrinu á Selfossi. Fischersetrið er safn um ævi og störf Bobby Fischer en Skákfélag Selfoss stendur að safninu.

Kasparov í FischersetrinuVísi/Daníel

Guðmundur G. Þórarinsson var formaður Skáksambands Íslands þegar einvígi Spassky og Fischer fór fram hér á landi 1972. Hér sýnir hann Kasparov frímerki og póstkort sem gefin voru út í tilefni af einvíginu.

Grantas og Kasparov.Vísir/Daníel

Grantas Grigorianas var mættur í Fischersetrið til að heiðra Kasparov. Grantas tefldi við Kasparov þegar sá síðarnefndi var einungis tíu ára gamall og hafði sigur, en báðir eru þeir fæddir í Azerbaijan. Grantas býr nú í Hveragerði og starfar hjá Kjörís. Kasparov tók vel á móti Grantas en mundi þó ekki eftir honum.

Einn af munum Fischersetursins er stóllinn sem Bobby Fischer sat alltaf í þegar hann heimsótti Braga fornbókasala í Bókinni á Hverfisgötu. Kasparov hafði mikinn áhuga á stólnum og velti fyrir sér hvaða bækur Fischer hefði lesið.Vísir/Daníel

Einn af munum Fischersetursins er stóllinn sem Bobby Fischer sat alltaf í þegar hann heimsótti Braga fornbókasala í Bókinni á Hverfisgötu. Kasparov hafði mikinn áhuga á stólnum og velti fyrir sér hvaða bækur Fischer hefði lesið.

Kasparov og Einar S. Einarsson við taflborðiðVísir/Daníel

Einar S. Einarsson frá RJF hópnum plataði Kasparov að taflborðinu en þar bað Kasparov Einar um að leika sinn uppáhalds upphafsleik. Jafnframt fóru þeir yfir upphafsstöðu sem hafði verið Fischer hugleikin skömmu áður en hann lést en stöðuna hafði Fischer séð í skák hjá Hikaru Nakamura.


Tengdar fréttir

Kasparov heimsækir leiði Fischers

Fimmtugasta Reykjavíkurskákmótið hefst í Hörpu í dag og stendur yfir til 12. mars. Í tilefni afmælisins verða ýmsar uppákomur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×