Fótbolti

Puyol yfirgefur Barcelona í sumar

Puyol á blaðamannafundinum í dag.
Puyol á blaðamannafundinum í dag. vísir/getty
Einn helsti þjónn Barcelona undanfarin ár, varnartröllið Carles Puyol, tilkynnti í dag að hann myndi yfirgefa herbúðir félagsins í sumar.

Puyol er orðinn 35 ára gamall og hefur leikið með Barcelona allan sinn feril. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið árið 1999 og hefur unnið 21 titil með félaginu. Þar af Meistaradeildina þrisvar sinnum.

Hann hefur verið í vandræðum með hnéð á sér í vetur og aðeins komið við sögu í tólf leikjum á þessari leiktíð.

Puyol ætlar að reyna að hjálpa liðinu eins og hann getur fram á sumar. Framtíðin er óráðin og hann gæti lagt skóna á hilluna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×