Kelleher og Fergu­son hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis

Heimir Hallgrímsson sést hér stýra sínum mönnum á hliðarlínunni í kvöld.
Heimir Hallgrímsson sést hér stýra sínum mönnum á hliðarlínunni í kvöld. Getty/Ben McShane

Írska fótboltalandsliðið vann sinn fyrsta heimasigur undir stjórn Heimis Hallgrímssonar í kvöld.

Írar unnu þá 1-0 sigur á Finnum í Þjóðadeildinni en leikurinn fór fram í Dublin.

Heimir hafði aðeins unnið einn sigur sem þjálfari írska liðsins og það var á útivelli á móti Finnum.

Fyrstu tveir heimaleikirnir undir stjórn Heimis höfðu aftur á móti tapast, á móti Englandi og Grikklandi.

Nú kom hins vegar fyrsti sigurinn og það var Evan Ferguson sem skoraði sigurmarkið á 45. mínútu.

Írarnir höfðu reyndar skorað fyrr í leiknum en mark Sammie Szmodics var dæmt af vegna rangstöðu.

Ferguson var hetjan en breyttist næstum því í skúrk þegar hann fékk dæmt á sig víti í seinni hálfleiknum.

Dómarinn fór í skjáinn og dæmdi hendi á Ferguson.

Joel Pohjanpalo tók vítið en Caoimhin Kelleher varði vítið.

Írar eru í þriðja sæti í riðlinum á eftir Englandi og Grikklandi en liðið er með tvo sigra og þrjú töp í fyrstu fimm leikjunum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira