Fótbolti

Iniesta kaupir danskt fót­bolta­fé­lag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andres Iniesta ætlar að mæta á leik FC Helsingör annað kvöld.  Liðið er þá á heimavelli í sextándu umferð dönsku C-deildarinnar.
Andres Iniesta ætlar að mæta á leik FC Helsingör annað kvöld.  Liðið er þá á heimavelli í sextándu umferð dönsku C-deildarinnar. Getty/Hiroki Watanabe

Spænska knattspyrnugoðsögnin Andres Iniesta er orðinn eigandi fótboltafélags. Það sem meira er að félagið sem um ræðir er í Danmörku.

Iniesta hefur gengið frá kaupunum á danska félaginu FC Helsingör. Helsingör spilar í dönsku þriðju deildinni.

„Ég vil þróa áfram og betrum bæta félagið,“ sagði hinn fertugi Iniesta. Aftonbladet segir frá.

Hann mætir á völlinn annað kvöld þegar FC Helsingör tekur á móti Ishöj.

Fyrirtæki i eigu Iniesta hefur fjárfest í hlutum í danska fótboltafélaginu

„Það sem ég hef séð er allt mjög jákvætt. Ég er því fullur bjartsýni þegar ég gerist hluteigandi í félaginu. Ég vil líka nýta mér mikla reynslu mína úr mörgum menningarheimum,“ sagði Iniesta.

Iniesta endaði feril sinn í Japan og á Arabíuskaganum en frægastur er hann fyrir mögnuð ár sín með Barceona og spænska landsliðinu.

Iniesta var í aðalhlutverki í spænska liðinu sem vann þrjú stórmót í röð; EM 2008, HM 2010 og EM 2012. Hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleik HM í Suður Afríku 2010.

Iniesta setti skóna upp á hillu 9 október síðastliðinn en hann spilaði síðast með liði í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

FC Helsingör er sem stendur í sjöunda sæti í dönsku C-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×