Sport

Tímamótasýning hjá Olil Amble

Olil Amble átti tímamótasýningu á glæsihryssunni Álfhildi frá Syðri-Gegnishólum og sigraði með yfirburðum keppni í gæðingafimi í Meistaradeildinni í hestaíþróttum.

Sýningin einkenndist af fágun, fagmennsku og útgeislun. Gæðingafimi er mjög flókin og tæknileg grein í hestaíþróttum, sem reynir mjög á samspils knapa og hests, ganghæfileika og þjálfunarstig.

Öll mót Meistaradeildar í hestaíþróttum eru send út í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í háskerpu með lýsingum sérfræðinga, auk þess sem sýndir eru samantektarþættir, endursýningar og viðtöl í umsjón Telmu Tómasson.

Hægt er að skoða dagskrána nánar og kaupa áskrift á vef Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×