Enski boltinn

Bale orðinn dýrasti leikmaður allra tíma

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Gareth Bale í leik með Tottenham
Gareth Bale í leik með Tottenham Mynd/Gettyimages
Tottenham birti rétt í þessu tilkynningu á heimasíðu sinni þar sem fram kemur að Gareth Bale sé genginn til liðs við Real Madrid. Bale hefur verið orðaður við Real Madrid í allt sumar og fékk þá ósk sína loks uppfyllta að komst til félagsins.

Bale sem átti stórkostlegt tímabil á síðasta ári þar sem hann skoraði 31 mark í öllum keppnum með Tottenham og velska landsliðinu.

Samkvæmt fréttum þá fór Bale á rúmar 85 milljónir punda sem gerir hann að dýrasta leikmanni allra tíma. Cristiano Ronaldo var sá dýrasti en Real greiddi 82 milljónir punda fyrir hann á sínum tíma.

Bale skrifaði undir sex ára samning við Madrid og verður væntanlega farinn að spila með þeim um næstu helgi.


Tengdar fréttir

Bale: Draumur minn að rætast

Gareth Bale skrifaði bréf á opinbera síðu Tottenham þar sem hann þakkar fyrir árin sex hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×