Fótbolti

Xavi: Þessi bikar skiptir minnstu máli

Real Madrid fór illa með Barcelona á Camp Nou í gær er Madridingar tryggðu sér sæti í úrslitum spænska Konungsbikarsins. Lið Barcelona var heillum horfið í leiknum.

Miðjumaðurinn Xavi hjá Barcelona viðurkenndi eftir leik að tapið væri sárt en sagði að leikmenn yrðu að horfa fram á veginn.

"Þetta var annað áfall eftir tapið gegn AC Milan en við verðum að halda áfram. Við vorum að missa af titli en þessi bikar skiptir minnstu máli af þeim sem við keppum um," sagði Xavi eftirleikinn.

"Við erum enn að berjast um tvo mikilvægustu titlana. Við verðum að koma okkur aftur á sigurbraut í Madrid um næstu helgi og bera höfuðið hátt."

Liðin mætast í deildinni næsta laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×