Tólf milljónir hafa safnast á Íslandi 11. apríl 2012 05:00 Njóta góðs af framlögum Hundruð þúsunda barna eiga nú um sárt að binda á Sahel-svæðinu í Afríku. Íslendingar hafa látið tólf milljónir króna af hendi rakna þeim til aðstoðar. Mynd/unicef
Söfnun UNICEF fyrir vannærð börn á Sahel-svæðinu í Afríku hefur gengið vonum framar þar sem tólf milljónir króna hafa safnast á einni viku. „Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn og það mikla traust sem UNICEF er sýnt," segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í tilkynningu. „UNICEF er á staðnum í öllum átta ríkjunum á Sahel-svæðinu þar sem þurrkar og uppskerubrestur hafa sett börn í lífshættu. UNICEF hefur þekkingu, reynslu og getu til að bjarga lífi vannærða barna og reynslan sýnir að 95% vannærðra barna sem fá meðhöndlun á þessu svæði lifa af. Flest börnin ná sér á einungis fáeinum vikum," segir Stefán jafnframt. Fjármunirnir munu koma að góðum notum þar sem framlögin sem þegar eru komin duga fyrir 214.000 skömmtum af vítamínbættu jarðhnetumauki. Um milljón barna á það á hættu að láta lífið vegna vannæringar í kjölfar þurrka og uppskerubrests á svæðinu. Upplýsingar um hvernig leggja má af mörkum til þessa málefnis má finna á unicef.is - þj
Fréttir Mest lesið Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Innlent Nafn stúlkunnar sem lést Innlent Eyða ekki tíma í að eltast við sögusagnir Innlent Bjarni segir brottvísunina standa Innlent Lífvarðaþjónustan segist meðvituð um tíst Musk um Biden og Harris Erlent „Ég er nauðgari eins og hinir mennirnir hér inni“ Erlent Telur litlar líkur á að Yazan verði vísað úr landi Innlent Bjóst ekki við því að þurfa á svartri vinnu að halda í ellinni Innlent Finnum sérstaklega til þegar börn eigi í hlut Innlent Viðurkennir að hafa ekki haft heimild til að stíga inn Innlent Fleiri fréttir Banaslys á byggingarsvæði í Árborg Tók rúmlega ár að fá „nei“ við einfaldri fyrirspurn Spenna innan ríkisstjórnarinnar og mannskæðir gróðureldar Hvorki verið að fylgja fólki né fara með það heim Eyða ekki tíma í að eltast við sögusagnir Fresta leitinni að Illes Sex ferðamenn festust í helli við Reynisfjöru Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Nafn stúlkunnar sem lést Til rannsóknar hvar stúlkan var myrt „Langveikt barn í hjólastól peð og fórnarlamb átaka við ríkisstjórnarborðið“ Telur litlar líkur á að Yazan verði vísað úr landi Sigmundur segir fjölmenningastefnuna komna í þrot Brýnt að finna þyrluflugi nýjan samastað Bein útsending: Málþing um sjúklingaöryggi Finnum sérstaklega til þegar börn eigi í hlut Óráðlegt að undirbúa flutning barns sem dvelur á sjúkrahúsi „Ég hótaði ekki stjórnarslitum“ Vandræðalegt að fylgjast með svörum ráðherra Segir lögin skipta máli en líka mannúð „Þó að það hafi verið mér þvert um geð“ Brottvísun Yazans mótmælt á meðan ráðherrar funda Segir Vinstri græn hafa þröngvað Guðrúnu til lögbrots Bjarni segir brottvísunina standa „Þetta er ekki bara pjatt“: Segir eftirlits þörf með gráum markaði með snyrtivörur Læknir hafi metið Yazan flugfæran Yazan mjög verkjaður og faðir hans brákaður „Við viljum þetta ekki“ Notuðu sönginn til að mótmæla vegna Yazan Leitin að Illes bar ekki árangur í nótt Sjá meira