Telur vinnu samráðshópsins hafa verið gagnlega Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. mars 2012 09:32 Geir Haarde og Ingimundur Friðriksson í landsdómi. mynd/ GVA
Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segir að hann hafi talið vinnu samráðshóps um fjármálastöðugleika vera mjög gagnleg. Hann geri ekki athugasemdir við það hvernig hópnum hafi verið stýrt. Þetta kom fram í máli Ingimundar í vitnaleiðslum fyrir landsdómi í morgun. Ingimundur átti sjálfur sæti í hópnum fyrir hönd Seðlabankans. Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er meðal annars gagnrýndur fyrir það að hafa vanrækt að gæta þess að störf og áherslur samráðshóps stjórnvalda um fjármálastöðugleika væru markvissar og skiluðu tilætluðum árangri. Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari spurði Ingimund hvort hann teldi að skortur á pólitískri stefnumörkun hefði hamlað starfi hópsins. Ingimundur sagðist ekki telja að svo hefði verið. „Menn geta alltaf verið vitrir eftir á. En ég vek athygli á því að sumarið 2008 var hafin vinna við gerð frumvarpa sem siðar varð hluti að neyðarlögunum" sagði Ingimundur aðspurður um það hvort vinna samráðshópsins hefði getað verið markvissari. Andri Árnason, verjandi Geirs, spurði Ingimund hvort hann sjálfur eða einhver úr Seðlabankanum hafi komið á framfæri kvörtunum yfir verkstjórn í samráðshópnum. Ingimundur kvað svo ekki hafa verið.
Landsdómur Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Svefnlyfjaneysla barna og heimildarmynd um úkraínska flóttamenn Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara 20 til 30 ný störf verða til í Árborg með tilkomu nýs öryggisfangelsis Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Sameining sveitarfélaga á Suðurnesjum og stórleikur í körfunni Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Reyndist vera eftirlýstur „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Stór skjálfti í Bárðarbungu Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira