Fótbolti

Pepe: Fjölmiðlar láta mig líta út eins og morðingja

Pepe hefur ítrekað orðið sjálfum sér til skammar.
Pepe hefur ítrekað orðið sjálfum sér til skammar.
Portúgalski varnarmaðurinn Pepe er allt annað en ánægður með spænska blaðamenn og hefur nú ráðist harkalega að þeim þar sem hann segist fá mjög ósanngjarna meðferð í spænskum fjölmiðlum.

"Fjölmiðlar hafa málað af mér þá mynd að ég sé morðingi," sagði Pepe í samtali við Canal+.

"Það sem skiptir mig mestu máli er að spila vel fyrir Madrid. Þegar ég er út á götu finn ég samt fyrir því að fólki líkar vel við mig."

Pepe hefur margoft orðið sjálfum sér til skammar með fáranlegri hegðun á knattspyrnuvellinum og getur því að mörgu leyti sjálfum sér um kennt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×