Fótbolti

Samaras sá um Rangers í Glasgow-slagnum

Elvar Geir Magnússon skrifar

Grikkinn hárprúði, Georgios Samaras, skoraði bæði mörk Celtic sem vann 2-0 útisigur á Rangers í Glasgow-slagnum í skoska boltanum í dag. Staðan í hálfleik var markalaus en í seinni hálfleik reyndist Celtic sterkara liðið.

Síðara mark Samaras kom úr vítaspyrnu sem hann krækti í sjálfur. Þessi tvö lið eru eins og oft áður í efstu sætum skosku deildarinnar. Eftir þessi úrslit er Celtic með 45 stig eftir 19 leiki en Rangers er með 41 stig eftir 17 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×