Enski boltinn

Manchester City lánar Adebayor til Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emmanuel Adebayor.
Emmanuel Adebayor. Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester City og Real Madrid hafa náð samkomulagi um að spænska félagið fái framherjan Emmanuel Adebayor á láni út tímabilið.

Samingurinn felur einnig í sér ákvæði að Real Madrid getur keypt leikmanninn í sumar. Adebayor, sem er með 175 þúsund pund í laun á viku, hefur lítið sem ekkert fengið að spila hjá Roberto Mancini, stjóra Manchester City, á þessu tímabili.

Real Madrid var að leita sér að framherja til þess að leysa af Argentínumanninn Gonzalo Higuaín sem verður væntanlega frá út tímabilið vegna meiðsla.

Real Madrid reyndi fyrst að fá Ruud van Nistelrooy á láni frá HSV Hamburg en þýska félagið var ekki tilbúið að lána hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×