Fótbolti

Fabregas: Ef ég þarf að fara frá Barcelona þá vil ég bara fara aftur til Arsenal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cesc Fabregas
Cesc Fabregas Mynd/Nordic Photos/Getty
Cesc Fabregas vonast til þess að ljúka ferli sínum hjá Barcelona en ef ekki þá sé hann aðeins tilbúinn að spila með einu öðru liði sem er Arsenal. Barcelona keypti Fabregas frá Arsenal á 25 milljónir punda í ágúst og síðan hefur Cesc unnið þrjá titla með Barcelona-liðinu.

„Ef ég þarf að fara frá Barca þá vil ég bara fara aftur til Arsenal," sagði Cesc Fabregas í viðtali á Sky Sports.

„Ég sé mig ekki spila annars staðar en hjá Arsenal eða Barcelona. Ég mun snúa aftur til Arsenal þegar tækifæri gefst til að horfa leiki og hitta strákana. Svo veit maður aldrei hvað gerist í framtíðinni," sagði Fabregas.

„Ég skammast mín ekki fyrir það að greina frá því að það eina sem ég gat sagt þegar ég fór frá Arsenal var: Takk fyrir. Ég gat ekki sagt neitt annað," sagði Fabregas.

„Ég skammast mín heldur ekki fyrir það að ég fór næstum því að gráta þegar ég fór. Ég hef aldrei hitt annan mann sem er eins trúr og Arsene Wenger. Ég trúi því að hann sé einn af þeim bestu," sagði Fabregas.

Cesc Fabregas hefur leikið 21 leik með Barcelona í öllum keppnum til þessa í vetur og er með 11 mörk og 10 stoðsendingar í þeim þar af er hann með 8 mörk og 5 stoðsendingar í 12 leikjum sínum í spænsku deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×