Fótbolti

Fabregas með tvö mörk í stórsigri Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cesc Fabregas skoraði tvö mörk í kvöld.
Cesc Fabregas skoraði tvö mörk í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona-liðið fór á kostum í 5-0 stórsigri á Levante í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en Levante-liðið sem er í fjórða sæti deildarinnar átti aldrei möguleika á Nývangi í kvöld. Cesc Fabregas skoraði tvö mörk fyrir Börsunga í kvöld.

Barcelona náði þar með að minnka forskot Real Madrid aftur niður í þrjú stig en Real Madrid vann 3-0 útisigur á Sporting Gijón fyrr í kvöld.

Cesc Fabregas skoraði fyrstu tvö mörk leiksins á 4. og 33. mínútu. Það fyrra kom efrier sendingu frá Andrés Iniesta og það seinna með skalla eftir sendingu frá Xavi. Isaac Cuenca kom Barca í 3-0 á 37. mínútu eftir sendingu frá Iniesta og þannig var staðan í hálfleik.

Lionel Messi skoraði fjórða markið á 55. mínútu eftir sendingu Dani Alves og Messi lagði síðan upp fimmta markið fyrir Alexis Sánchez sex mínútum síðar. Barcelona slakaði á eftir fimmta markið en gat samt sem áður bætt við mörkum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×