Tónlist

Plata Amy Winehouse á toppnum

Amy Winehouse fannst látin á heimili sínu á laugardaginn fyrir viku.
Amy Winehouse fannst látin á heimili sínu á laugardaginn fyrir viku. Mynd/AP
Sala á tónlist Amy Winehouse hefur margfaldast frá því að breska söngkonan lést fyrir rúmri viku. Fimm ára gömul plata hennar, Back to Black, trónir nú í efsta sæti breska vinsældarlistans líkt og platan gerði eftir að hún kom út. Fyrri plata söngkonunnar, Frank, sem kom út árið 2003 er í 5. sæti á vinsældarlistanum.

Amy Winehouse fannst látin á heimili sínu á laugardaginn fyrir viku, en hún lengi hafði glímt við áfengis- og eiturlyfjavanda. Hún var 27 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.