Enski boltinn

Forlan opinn fyrir tilboðum frá Englandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Diego Forlan, sem leikur með Atletico Madrid, segist vera opinn fyrir því að snúa aftur til Englands ef rétta tilboðið berst.

Forlan lék á sínum tíma með Manchester United en fór til Spánar árið 2004 þar sem honum hefur vegnað vel með bæði Villarreal og Atletico.

Hann átti að sama skapi nokkuð erfitt uppdráttar hjá United og náði sjaldan að vinna sér fast sæti í byrjunarliðinu.

Forlan er í dag 31 árs gamall og getur vel ímyndað sér að láta reyna á það aftur að spila í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég á enn tvö ár eftir af samningi mínum hjá Atletico Madrid og mér líður virkilega vel þar. En maður veit aldrei hvað gerist í fótbolta,“ sagði Forlan í samtali við enska fjölmiðla.

„Ef bæði félagið mitt og ég sjálfur myndum fá tilboð sem væri álitlegt yrði maður að sjá til.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×