Fótbolti

Blikar úr leik í Evrópudeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Markmaður Motherwell lokar markinu í kvöld.
Markmaður Motherwell lokar markinu í kvöld. Fréttablaðið/Daníel

Breiðablik er úr leik í Evrópudeild UEFA eftir tap á heimavelli, 0-1, fyrir skoska liðinu Motherwell. Skoska liðið vann rimmu liðanna 2-0 samanlagt.

Blikar voru betri aðilinn í fyrri hálfleik og sköpuðu sér þrjú góð færi. Guðmundur Pétursson fékk tvö þeirra en hann var ekki á markaskónum í gær og leit frekar út fyrir að vera á gúmmískóm miðað við hvernig hann klúðraði báðum færum.

Skotarnir lágu þolinmóðir til baka og dældu löngum sendingum fram á framherjann Jamie Murphy sem var sprækur.

Þrem mínútum fyrir hlé brást rangstöðugildra Blika en Murphy fékk stutta sendingu inn í teiginn. Hann afgreiddi færið vel og kom Motherwell yfir. 0-1 og Blíkar þurftu nú að skora þrjú mörk til þess að komast áfram.

Blikar fengu úrvalsfæri til þess að jafna á 48. mínútu er Guðmundur Kristjánsson stóð einn gegn opnu marki. Færið var þó þröngt og skot Guðmundar hafnaði í hliðarlínunni.

Skotarnir voru afar þéttir fyrir í síðari hálfleik og eftir því sem leið á hálfleikinn rann mesti móðurinn af Blikunum.

Fátt markvert gerðist á lokamínútunum og Motherwell komið áfram í næstu umferð.

Blikar hefðu getað gert miklu betur í kvöld en þeir eru úr leik fyrir eigin klaufaskap. Þeir fengu færin sem vantaði en nýttu þau einfaldlega ekki.

Breiðablik-Motherwell 0-1

0-1 Jamie Murphy (42.)

Áhorfendur: 1.500, uppselt.

Dómari: Carlos Miguel Taborda Xistra, Portúgal.

Skot (á mark): 15-7 (2-4)

Varin skot: Ingvar 2 - Randolph 2

Horn: 4-5

Aukaspyrnur fengnar: 13-21

Rangstöður: 0-8

Breiðablik (4-5-1)

Ingvar Þór Kale

Arnór Sveinn Aðalsteinsson

Kári Ársælsson

Elfar Freyr Helgason

Kristinn Jónsson

(78., Árni Kristinn Gunnarsson)

Kristinn Steindórsson

Finnur Orri Margeirsson

(72., Haukur Baldvinsson)

Jökull Elísabetarson

Guðmundur Kristjánsson

Alfreð Finnbogason

Guðmundur Pétursson

(61., Andri Rafn Yeoman)

Motherwell (4-5-1)

Darren Randolph

Steven Saunders

Steven Hammell

Mark Reynolds

Stephen Craigan

Tom Hateley

Steven Jennings

Jamie Murphy

(87., Robert McHugh)

John Sutton

(84., Jamie Pollock)

Keith Lasley

Ross Frobes

(74., Chris Humphrey)












Fleiri fréttir

Sjá meira


×