Erlent

Lítið skeytt um Pakistan?

Neyðarástand Ástandið á flóðasvæðunum í Pakistan er hið versta sem sést hefur á hamfarasvæðum í áratugi, segir yfirmaður hjá UNICEF.  NordicPhotos/AFP
Neyðarástand Ástandið á flóðasvæðunum í Pakistan er hið versta sem sést hefur á hamfarasvæðum í áratugi, segir yfirmaður hjá UNICEF. NordicPhotos/AFP

Hjálparstofnanir segja að alþjóðasamfélagið sýni óvenjulítinn áhuga á að styðja við fórnarlömb flóðanna í Pakistan.

Um 1.600 lík hafa fundist og daglegt líf meira en 17 milljóna manna hefur gengið úr skorðum þremur vikum eftir að flóðin hófust. Í borginni Sukkkur einni eru um fjórar milljónir manna heimilislausar. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO segir að sjúkdómar séu farnir að breiðast út á flóðasvæðinu.

Louis-George Arsenault, yfirmaður neyðaráætlana hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, sagði við blaðamenn í Washington á mánudag að áhugi alþjóðasamfélagsins á að koma fólki á flóðasvæðinu til hjálpar sé óvanalega lítill. Þrátt fyrir það er ástandið í Pakistan nú það versta sem skapast hefur í kjölfar hamfara um áratuga skeið.

„Þörfin fyrir fjármagn er gríðarleg, miðað við þau framlög sem við höfum fengið. Þetta er versta neyðarástand sem við höfum staðið frammi fyrir áratugum saman,“ hafði breska útvarpið BBC eftir Arsenault.

Sameinuðu þjóðirnar höfðu áætlað að verja um 55 milljörðum króna til hjálparstarfsins en aðeins hefur tekist að útvega um 70% fjárhæðarinnar.

Enn er flóðahætta og ástandið fer versnandi. Flóðvarnagarðar, sem hróflað var upp til bráðabirgða þegar flóðin hófust til þess að verja borgina Shahdadkot eru nú farnir að gefa sig og íbúar eru lagðir á flótta. Tugir þúsunda úr þeirra hópi bætast í hóp þeirra sem leita á náðir hjálparstofnana á degi hverjum, auk þess sem reynt er að bjarga þeim sem ekki komast hjálparlaust undan.

Talið er að tíundi hluti heimilislausra hafi fengið athvarf í neyðar­búðum á vegum hjálparstofnana, en hjálpargögn eru af skornum skammti. Allur þorri nauðstaddra er enn á eigin vegum, án matar og þaks yfir höfuðið. peturg@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×