Enski boltinn

Ungur Ísraeli til City frá Barcelona

Elvar Geir Magnússon skrifar
Assulin í búningi Barcelona.
Assulin í búningi Barcelona.

Manchester City hefur fengið nítján ára ísraelskan miðjumann í sitt lið. Gai Assulin heitir kappinn en hann kemur frá Barcelona þar sem hann var samningslaus.

Assulin á einn A-landsleik að baki fyrir Ísrael en hann lék þann leik aðeins sextán ára gamall. Hann náði ekki að leika deildarleik fyrir Barcelona en spilaði bikarleik fyrir aðalliðið fyrir um ári.

Yaya Toure á þátt í því að Assulin kemur til City en þeir voru liðsfélagar hjá Barcelona. „Ég ræði við Yaya á hverjum degi og vonast til þess að geta spilað með honum einn daginn," segir Assulin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×