Erlent

Sagðist þakklát forseta Írans

Sarah Shourd Laus úr fangelsi.
fréttablaðið/AP
Sarah Shourd Laus úr fangelsi. fréttablaðið/AP

„Ég er þakklát,“ sagði Sarah Shourd, 32 ára bandarísk kona, sem látin var laus úr fangelsi í Íran í gær. Áður en hún fór úr landi þakkaði hún bæði írönskum stjórnvöldum og öllum öðrum ríkisstjórnum og einstaklingum sem unnu að því að fá hana látna lausa.

Hún var handtekin snemma á árinu ásamt tveimur öðrum Bandaríkjamönnum, Shane Bauer, sem er kærasti hennar, og Josh Fattal, sem er vinur þeirra beggja.

Þau voru sökuð um njósnir, en fjölskyldur þeirra segja þau hafa verið í fjallgöngu á landamærum Íraks og Írans. Bauer og Fattal eru enn í haldi.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×