Körfubolti

Ben Wallace gæti verið á leiðinni aftur til Detroit

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ben Wallace var meistari með Detroit árið 2004.
Ben Wallace var meistari með Detroit árið 2004. Mynd/AfP

NBA-liðið Detroit Pistons er enn að leita sér af stórum leikmanni til að fullkoma leikmannahóp sinn fyrir næsta tímabil og svo gæti farið að þeir til mannsins sem átti miðjuna í Detroit á árunum 2000 til 2006.

Ben Wallace er með lausan samning eftir að hafa spilað með Cleveland Cavaliers á síðasta tímabili. Wallace skoraði aðeins 2,9 stig á 23,5 mínútum í leik við hlið LeBron James.

Það var búist við að Wallasce myndi leggja skónna á hilluna en það gæti breyst bjóðist honum að enda ferilinn þar sem hann átti sín bestu ár og var meðal annars fjórum sinnum kosinn varnarmaður ársins.

Ben Wallace er 34 ára gamall og hefur spilað 903 deildarleiki í NBA. Hann hefur skorað 6,2 stig, tekið 10,3 fráköst og varið 2,1 skot að meðaltali í þeim.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×