Julio Cruz á leiðinni frá Inter - Enn óvissa með framtíð Zlatan Ibrahimovic Ómar Þorgeirsson skrifar 10. júní 2009 18:45 Massimo Moratti. Nordic photos/Getty images
Massimo Moratti forseti Inter staðfesti að framherjinn Julio Cruz myndi yfirgefa Ítalíumeistarana í sumar en vildi ekkert tjá sig um framtíð Zlatan Ibrahimovic. Svíinn var nú síðast orðaður við Barcelona í skiptum fyrir Samuel Eto'o en Moratti kvað ítalska félagið hvorki þurfa né vilja selja sína bestu menn. „Við þurfum ekki að selja leikmenn gegn vilja okkar. Staða okkar fjárhagslega er ekki þannig. Við munum hins vegar skoða öll kauptilboð sem berast. Það munu pottþétt leikmenn yfirgefa félagið í sumar vegna þess hvernig fjárhagslegt umhverfi er í boltanum í dag," segir Moratti í samtali við sjóvarpstöð Inter í dag. Einn leikmaður sem staðfest hefur verið að sé á förum frá félaginu er framherjinn Julio Cruz en hann átti erfitt með að festa sig í sessi undir José Mourinho á síðustu leiktíð. Hinn 34 ára gamli Argentínumaður hefur hins vegar verið farsæll með félaginu og skorað 49 mörk í 129 leikjum á níu árum og Moratti er sannfærður um að mörg félög munu keppast um hans þjónustu. „Cruz er búinn að vera frábær fyrir okkur. Það er bara ekki sanngjarnt að leikmaður af hans gæðaflokki spili bara með varaliðinu og því mun hann fara frá Inter í sumar. Það verða pottþétt mörg félög sem keppast um að fá slíkan gæða atvinnumann í sínar raðir," segir Moratti.
Ítalski boltinn Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Valsmenn settu sex gegn Grindavík Íslenski boltinn „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Fótbolti Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Handbolti Gísli og félagar með fullt hús stiga Fótbolti Fleiri fréttir „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum Sjá meira