Fótbolti

Ronaldo kynntur þann 6. júlí

Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Nordic Photos / AFP

Cristiano Ronaldo mun verða kynntur til sögunnar sem leikmaður Real Madrid fyrir stuðningsmönnum liðsins þann 6. júlí næstkomandi.

Þetta kemur fram í spænskum fjölmiðlum í dag en enn hafa engar fregnir borist af því að Ronaldo hafi komist að samkomulagi um kaup og kjör við félagið. Manchester United er búið að samþykkja kauptilboð Real í kappann.

Buíst er við því að 25 þúsund stuðningsmenn Real Madrid muni mæta á Santiago Bernabeu-leikvanginn til að berja goðið augum í búningi Real í fyrsta sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×