Fótbolti

Puyol hafnaði AC Milan, Chelsea og Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Carles Puyol.
Carles Puyol.

Það er óhætt að segja að Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, hafi haft marga góða valkosti þegar hann var að íhuga framtíð sína á dögunum.

AC Milan, Chelsea og Man. City vildu öll fá hann í sínar raðir og spænska blaðið AS segir að Puyol hafi velt því fyrir sér í margar vikur hvort hann ætti að ganga í raðir Milan.

Ræddi hann málið meðal annars ítarlega við vin sinn, Demetrio Albertini, sem lék lengi með Milan.

Á endanum ákvað Puyol að framlengja við Barcelona. Þegar hann mætti síðan á æfingu í kjölfarið þá klöppuðu liðsfélagar hans í Barcelona fyrir honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×