Hermann skoraði í sigri Portsmouth 17. desember 2008 21:55 NordicPhotos/GettyImages
Hermann Hreiðarsson nýtti tækifærið vel í kvöld þegar hann var í byrjunarliði Portsmouth í fyrsta sinn í langan tíma. Hann skoraði þriðja og síðasta mark liðsins í 3-0 sigri þess á hollenska liðinu Heerenveen í Evrópukeppni félagsliða. Tony Adams knattspyrnustjóri tefldi fram nokkuð breyttu liði frá tapleiknum um helgina og setti Hermann m.a. í byrjunarliðið. Hann þakkaði fyrir sig með því að skora þriðja mark liðsins í blálokin. Peter Crouch skoraði hin tvö. Þegar var ljóst að enska liðið kæmist ekki áfram í keppninni. Í hinum leiknum í E-riðli gerðu AC Milan og Wolfsburg 2-2 jafntefli í Mílanó. Massimo Ambrosini og Pato gerðu mörk heimamanna en Christian Zaccardo og Mahir Saglik mörk þýska liðsins. Í F-riðli unnu lærisveinar Martin Jol í Hamburg öruggan 3-1 sigur á Aston Villa og tryggðu sér efsta sætið í riðlinum. Ivica Olic skoraði 2 mörk fyrir Hamburg en Steven Sidwell var rekinn af velli í lokin. Villa var þegar búið að tryggja sér sæti í 32 liða úrslitum. Í þessum sama riðli gerðu svo Ajax og Slavia Prag 2-2 jafntefli. Í G-riðli vann FC Kaupmannahöfn 1-0 sigur á Club Brugge og St. Etienne og Valencia skildu jöfn 2-2. Í H-riðli vann Deportivo 1-0 sigur á Nancy og Feyenoord tapaði 1-0 heima fyrir Lech Poznan.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Fleiri fréttir Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Sjá meira