Viðskipti innlent

Bankahólfið: Uppsagnir

Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson stjórnendur KB banki
Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson stjórnendur KB banki
Menn eru farnir að standa við yfirlýsingarnar um aðgerðir til að bregðast við breyttu árferði í rekstri fjármálafyrirtækja. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, sagði að fækkað yrði í starfsliði bankans. Auðvitað munar þar mestu um sölu á hluta af starfsemi sem áður var undir Singer & Friedlander. Í fyrradag fengu þó fjölmargir starfsmenn bankans uppsagnarbréf, en þeir voru samt rétt undir 30 því annars hefði verið um hópuppsögn að ræða. Bankarnir fara þannig að þessa mánuðina að klípa jafnt og þétt af starfsliðinu til að vekja ekki upp óþægilega umræðu um uppsagnir og vandræði sem því fylgja. Má búast við áframhaldandi uppsögnum á næstunni. Hrist upp í hestamönnum

Dr. Kári Stefánsson hjá DeCode hristi upp í aðalfundi Hrossa­ræktarsamtaka Suður­lands sem fram fór á Þing­borg í Flóahreppi í síðustu viku. Bændablaðið greinir frá því að Kári hafi „fjarflutt" erindi, en honum var varpað upp á vegg með aðstoð tækninnar. Meðal annars sagði Kári að hestamennskan væri sú íþrótt sem mest hefði hnignað í 1.100 ára sögu þjóðarinnar, menn mættu helst á landsmót til þess að detta í það. Ef til vill var eins gott að Kári var fjarri ef lesið er milli lína í frásögn Bændablaðsins. Enginn tjáði sig þó opinberlega um skoðanir hans, utan Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur, sem „gaf lítið fyrir erindi Kára og var honum meira og minna ósammála í öllu".

Fjármögnun á yfirdrætti

Icelandic Group tilkynnti í gær að það ætlaði að leggja fyrir hluthafafund tillögu um að gefa út skuldabréf í evrum að andvirði 5 milljarðar króna með 23 prósenta föstum ársvöxtum. Uppleggið sýnir hve dýrt það er orðið að fjármagna starfsemi félaga eins og Icelandic, sem þegar er mjög skuldsett. Orðrómurinn á markaðnum hefur verið sá að hlutur flestra muni þynnast út og Björgólfur Guðmundsson muni á endanum eignast félagið þegar skuldabréfunum verði breytt í hlutabréf á gengingu einum. Það skýri svo fall Icelandic í Kauphöllinni síðustu daga, en bréf félagsins hafa lækkað um meira en 36% á sjö dögum. Með þessu á að reyna að bjarga þessu gamalgróna fyrirtæki fyrir horn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×