Erlent

Passaðu þig þegar þú segir það með blómum

Óli Tynes skrifar

Leroy Greer er bílasali í Missouri City í Bandaríkjunum. Leroy er dálítið rómantískur. Hann sendi kærustunni sinni blómvönd og bangsa. Með korti þar sem sagði; "Vildi bara segja að ég elska þig." Ósköp sætt. Því miður sendi blómasalinn kvittunina heim til eiginkonu hans. Nú hefur Leroy höfðað mál gegn blómasalanum.

Leroy vill fá eina milljón dollara í bætur fyrir það hugarangur sem skilnaðurinn olli honum. Hann segir að hann hafi verið fullvissaður um að engin kvittun yrði send heims til hans.

Blómasalinn segir að hann taki allt sem snerti viðskiptavini sína alvarlega. Hann geti hinsvegar ekki borið ábyrgð á framferði þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×