Viðskipti erlent

Matsfyrirtækin brugðust seint við

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sem ætar að skoða hvers vegna matsfyrirtækin brugðust seint við samdrætti á bandarískum fasteignalánamarkaði.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sem ætar að skoða hvers vegna matsfyrirtækin brugðust seint við samdrætti á bandarískum fasteignalánamarkaði. Mynd/AFP

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) ætlar að skoða hvers vegna lánshæfismatsfyrirtæki brugðust seint við samdrætti á bandarískum fasteignalánamarkaði, að sögn vefútgáfu breska blaðsins Times. Blaðið hefur eftir ráðamönnum í Brussel að matsfyrirtækin hefðu átt að bregðast fyrr við og vara við kaupum á bandarískum fasteignalánasöfnum í ljósi samdráttarins sem hefur falli á hlutabréfamörkuðum víða um heim.

Blaðið segir framkvæmdastjórnina hafa reyndar fundað með forsvarsmönnum matsfyrirtækisins Standard & Poor's vegna málsins í síðasta mánuði og var þar áhyggjum ESB á framfæri.

Í kjölfar verðfalls á flestum fjármálamörkuðum eru fjárfestar afar áhættufælnir og hafa þeir flestir horfið frá kaupum á fasteignalánum sem þessum, að sögn blaðsins. Fyrirtæki sem enn sitja uppi með lánasöfn hafa reynt eftir mætti að losa sig við þau, oft á tíðum með miklum afslætti sem hefur skilað sér í tap hjá fyrirtækjunum.

Vonast til að fasteignalánamarkaðurinn jafni sig í lok sumar og verði jafnvægi náð í næsta mánuði. Batinn verður hins vegar rólegur, að mati Times, sem þó tekur fram að mesta hættan liggi í því að samdrátturinn geti leitt til þess að neytendur dragi saman seglin. Dragist einkaneysla saman getur það skilað sér í minni hagvexti en áður var spáð, að sögn Times.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×