Innlent

Pólitískar handtökur á Íslandi

Pólitískar handtökur eru staðreynd á Íslandi, segir Eva Hauksdóttir, aðgerðarsinni. Hún kveður fjölmarga hafa verið handtekna fyrir það eitt að vera nærstadda við mótmæli Saving Iceland. Sjálf segist hún hafa verið svipt frelsi í níu klukkustundir eftir að hafa fylgst með mótmælum við Hellisheiðarvirkjun í síðustu viku. Hreyfingin hyggst kæra Ríkissjónvarpið til siðanefndar Blaðamannafélagsins.

Grasrótarhreyfingin Saving Iceland hélt í dag blaðamannafund til að gefa fjölmiðlum kost á kynna sér markmið og hugmyndafræði samtakanna. Fáir þekktust boðið. Markmiðið er eitt, sögðu talsmennirnir, að losa Ísland undan stóriðjustefnunni. Þau segja að hér ríki meðvitundarleysi um tengsl álframleiðenda við hergagnaframleiðslu og benda til dæmis á að Alcoa hafi fyrir tveimur árum gert 12,5 milljón dollara samning við bandaríska herinn um rannsóknir, þróun og smíði léttra farartækja til hernaðaraðgerða á landi. Frétt þess efnis birtist á heimasíðu Alcoa í desember 2005.

Talsmennirnir sögðu að þeim væri full alvara með að stöðva eyðileggingu á náttúru Íslands og myndu beita til þess löglegum sem ólöglegum aðgerðum og valda fyrirtækjum sem tengjast stóriðju fjárhagslegu tjóni og óþægindum. Þá muni koma til átaka því ekkert hafi náðst fram með mótmælagöngum, metsölubók, blaðaskrifum og bréfaskrifum.

Á fundinum kom einnig fram að hreyfingin hyggst kæra fréttaflutning Ríkissjónvarpsins af því að mótmælendur Saving Iceland fái greitt fyrir handtökur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×