Innlent

Bankagróði 6 mánaða dygði grunnskólum í 2 ár

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar

Þrír stærstu bankar landsins högnuðust um tæpa níutíu milljarða á fyrri hluta ársins. Hagnaðurinn myndi duga til að reka alla grunnskóla á landinu í meira en tvö ár. Landsbankinn kynnti afkomu á fyrri hluta ársins í dag og er hagnaðurinn röskir 26 milljarðar.

Nú hafa allir þrír stærstu bankar landsins, Kaupþing, Landsbankinn og Glitnir, kynnt uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Landsbankinn hagnaðist um 26,3 milljarða eftir skatta - sem er 6 milljörðum meira en á sama tíma í fyrra. Samtals högnuðust bankarnir um 88,6 milljarða króna á fyrri hluta ársins. Það er heldur meira en öll sveitarfélögin frá í útsvar af tekjum landsmanna á síðasta ári. Þau fá 87,3 milljarða í útsvar og er langsamlega stærsti tekjustofn sveitarfélaganna, peningar sem standa að miklu leyti undir rekstri leikskóla, grunnskóla, ýmissi þjónustu við fatlaða og aldraða, skipulagsmálum, holræsakerfi, sorphirðu og fleiru.

Rúma 32 milljarða þurfti til að reka alla grunnskóla landsins árið 2005 - hagnaður bankanna dygði því til að reka þá í á þriðja ár.

En berum saman tölurnar frá þessum þremur bankaveldum í örþjóðfélaginu Íslandi.

Kaupþing hagnaðist langmest fyrstu sex mánuði ársins, eða 45,8 milljarða króna, Landsbankinn rúma 26 og Glitnir um 16,5.

Þá eru Landsbankinn og Glitnir varla hálfdrættingar á við Kaupþing þegar eignir bankanna eru skoðaðar. Samtals eru eignir bankanna taldar um 9500 milljarða króna virði. Eignir bankanna eru þar með orðnar, ekki bara tvöfalt meiri en verðmæti allra fasteigna á Íslandi, heldur þarf að margfalda fasteignir landsmanna með tveimur komma sex til að fá út sömu tölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×