Erlent

Al-Sadr tekur þátt í stjórnmálum á nýjan leik

Múktada al-Sadr.
Múktada al-Sadr. MYND/AFP

Stjórnmálaarmur samtaka sjía klerksins Múktada al-Sadr tilkynnti í dag að hann hefði hafið þátttöku í írakska þinginu á ný. Fyrir mánuði síðan dró hann sig úr stjórnarsamstarfi vegna óánægju með viðbrögð stjórnvalda við árás á heilaga mosku sjía múslima.

Tilkynning flokksins kemur á góðum tíma fyrir stjórnvöld í Írak en hún er talin sýna stuðning við stjórn Nuri al-Maliki, forsætisráðherra landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×