Erlent

Tesco búðir opnaðar á ný

MYND/AFP
Breska lögreglan hefur opnað fjórtán Tesco verslanir sem lokað var af öryggisástæðum í framhaldi af hótunum sem bárust lögreglu og fyrirtækinu.

Í gær tilkynnti talsmaður lögreglunnar að á annan tug Tesco verslana yrði lokað og þær yrðu ekki opnaðar aftur fyrr en gengið hefði verið úr skugga um að almenningi væri óhætt að eiga þar viðskipti.

Lögreglan aflétti síðan hættuástandi snemma í morgun en hún hefur tilkynnt að málið yrði rannsakað sérstaklega en svo er að sjá að hótanirnar hafi verið gabb. Málið er því ekki talið tengjast hryðjuverkum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×