Innlent

Í skýrslutöku hjá lögreglu

Guðjón Helgason skrifar

Rússnesk vændiskona sem bauð blíðu sína gegn greiðslu á hóteli í Reykjavík var vísað út af herbergi sínu í gær. Hún er nú í skýrslutöku hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Lögregla segir of snemmt að segja til um hvort málið tengist mansali.

Þegar fréttastofa kannaði vefsíðu rússneskrar fylgdarþjónustu í gær voru þar upplýsingar um Reykjavíkurheimsókn tuttugu og þriggja ára konu sem kallar sig Ornellu. Þar var útlistuð nákvæmlega það kynlíf sem var í boði og fór ekki á milli mála hvað átt var við. Ítarlegur verðlisti var á síðunni og með auðveldum hætti hægt að panta einn eða fleiri klukkutíma í gær og næstu þrjá daga þar á eftir. Fréttastofa pantaði tíma og reyndi að ná tali af koununni - en hún vildi ekki veita viðtal.

Þegar vefsíða fylgdarþjónustunnar var skoðuð í morgun var Ornella ekki lengur á forsíðunni en þegar nánar var skoðað mátti finna upplýsingar um hana en ekki var hægt að bóka heimsókn í Reykjavík.

Þær upplýsingar fengust síðan hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins að málið hefði verið tekið til skoðunar vegna fréttar Stöðvar 2 í gærkvöldi. Lögregla fór þegar til hennar á hótelið í gærkvöldi og kom hún síðan á lögreglustöð til skýrslutöku í morgun.

Vildi lögregla lítið tjá sig um málið að svo stöddu. Of snemmt væri að segja til um hvort það tengdist mansali.

Eiríkur Beck, öryggisstjóri Icelandair hótela, segir að mál sem þessi geti vissulega komið upp á hótelum hvar sem er. Nordica og önnur hótel Icelandair hafi viðbragðsáætlun og henni hafi verið fylgt eftir frétt Stöðvar 2. Konunni hefi verið vísað af hótelinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×