Erlent

Álver fylgi ódýrri orku

Guðjón Helgason skrifar

Forstjóri álfyrirtækisins Alcoa segir nauðsynlegt að byggja áttatíu ný álver víða um heim næstu árin til að svara aukinni eftirspurn eftir áli. Hann spáir því að álverum víða í Evrópu og Norður-Ameríu verði lokað og önnur byggð á Íslandi og annars staðar þar sem ódýra orku sé að fá.

Þetta segir Alain Belda, forstjóri Alcoa, í viðtali við fréttavef Bloomberg í dag. Fjallað er um mögulega fjandsamlega yfirtöku Alcoa á Alcan. Með samruna myndi Belda ráða yfir tuttugu prósentum af alþjóðlega álmarkaðnum. Fyrirtækið yrði þá í enn sterkari stöðu þegar kæmi að samkeppni um verkefni á Íslandi og annars staðar í heiminum.

Alcoa birtir afkomu tölur fyrir fyrri helming ársins við lokun markaða í Bandaríkjunum í kvöld og hefur verð á bréfum hækkað um hálft prósent í dag en góðri afkomu er spáð.

Í viðtalinu spáir Belda því að eftirspurn eftir áli eigi enn eftir að aukast og telur því þörf á að byggja minnst áttatíu ný álver á næstu árum. Á fyrstu fjórum árum hafi vantað sextíu og tvö þúsund tonn upp á að framleiðslan svaraði eftirspurn sem þá var um tólf komma tvær milljónir tonna.

Belda segir áform uppi hjá álfyrirtækjum um að loka mörgum álverum víða í Evrópu og Norður-Ameríku en það verði gert vegna hækkandi orkuverðs. Þá verði framleiðslan færð til ríkja á borð við Ísland þar sem ódýra orku sé að fá.

Hann segir samkeppni nú mikla um svæði þar sem hægt verði að byggja ný álver. Fyrr á þessu ári hafi Grænlendingar valið að fá Alcoa frekar en Norsk Hydro til að byggja eitt álver og minnst fjórar vatnsaflsvirkjanir eftir harða baráttu fyrirtækjanna í milli.

Ýmis áform eru uppi um álver á Íslandi. Stækkunin í Straumsvík er rædd, Kelisnes er í umræðunni, Helguvíkurálver á teikniborðinu og Húsavíkurálver Alcoa í farvatninu. En á meðan eftirspurn eftir áli er rædd meðal stjórnenda mótmæla andstæðingar í Reykjavík næstu daga en halda svo austur á land til að láta í sér heyra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×